** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög fallegt og vel skipulagt 189,7 m2 parhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr í litlum botnlanga við Súluhöfða 8 í Mosfellsbæ. Eignin skiptist í eldhús, stofu/borðstofu, 4 svefnherbergi (möguleiki að bæta við 5 svefnherberginu), baðherbergi, gestasnyrtingu, þvottahús, forstofu og bílskúr með geymslulofti. Einnig er stórt geymsluloft yfir hluta af húsinu. Eignin er skráð 189,7 m2, þar af parhús 152,5 m2 og bílskúr 37,2 m2. Mjög stórt hellulagt bílaplan með snjóbræðslu. Tvær timburverandir og er önnur þeirra afgirt með heitum potti og útisturtu. Vinsæl staðsetning, stutt í Lágafellskóla, leikskólann Hulduberg og Lágafellslaug. Einnig er mjög stutt niður á golfvöll Mosfellsbæjar. Samkvæmt upplýsingum frá seljanda hafa hefur verið farið í eftirfarandi framkvæmdir undanfarin ár: Árið 2015 voru þvottahús og bílskúr tekin í gegn og epoxý sett á gólf í báðum rýmum. Árin 2016-2018 var garður fyrir aftan húsið tekinn í gegn, hleðslukantur og skjólveggur settur upp fyrir aftan húsið. Árið 2019 var bílastæði stækkað og hlaðið blómabeð sett fyrir framan hús. Árið 2020 var pallur fyrir framan hús endurnýjaður. Heitum potti komið fyrir og útisturta sett upp ásamt því að falleg Phillip Hue lýsing var sett á pallinum. Ný útiljós sett í kringum húsið. Árið 2022 voru bæði baðherbergin endurnýjuð ásamt gólfefnum í forstofu. Árið 2024 var nánast allt húsið málað að innan af málarameistara. Árið 2025 var gólfhitakerfið yfirfarið og sett upp ný gólfhitakista ásamt stjórnstöð. Settar voru upp nýjar þráðlausar digital hitastýringar fyrir gólfhitann í hverju herbergi. Einnig var sett ný bílskúrshurð og rennur fyrir hana.Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent straxNánari lýsing:Forstofa er með fataskápum og flísum á gólfi. Úr forstofu er innangengt inn í
bílskúrinn.
Stofa/borðstofa er í opnu björtu rými og með parketi á gólfi. Mikil lofthæð og innbyggð lýsing sem gerir rýmið bjart og skemmtilegt. Úr stofu er útgengt út á afgirta timburverönd í suðvesturátt.
Eldhús er með U-laga innréttingu og borðkrók, flísar á gólfi. Í innréttingu er blástursofn, helluborð og vifta. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.
Gestasnyrting er inn af forstofu, flísalögð með vegghengdu salerni og innréttingu. Aðgengi er upp á geymsluloft úr gestasnyrtingu.
Baðherbergi er glæsilegt, flísalagt með vegghengdu salerni, handklæðaofni, innréttingu og sturtu. Innbyggð tæki eru í sturtu.
Þvottahús er inn af bílskúr með innréttingu fyrir þvottavél og þurkara í vinnuhæð, vinnuborði með skolvaski og miklu skápaplássi. Epoxý á gólfi.
Svefnherbergi nr. 1 (Hjónaherbergi) er rúmgott með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2 er með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 4 er mjög rúmgott með parketi á gólfi og er í dag notað sem fjölskyldurými/sjónvarpsrými. Úr herberginu er útgengi út á timburverönd í bakgarði. Auðvelt væri að skipta herberginu upp í tvö herbergi og nýttu seljendur það sem tvö herbergi áður.
Bílskúr er með epoxý á gólfi. Gott geymsluloft er í bílskúr.
Verð. kr. 149.900.000,-