Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (bjarni@remax.is/s:662-6163) kynnir í einkasölu virkilega fallegt raðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr við Laxatungu 183, 270 Mosfellsbæ. Húsið skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, gestabaðherbergi, þvottahús, bílskúr og geymslu. Mikil lofthæð, gott skipulag og gólfhiti í öllu húsinu. Sérpantaðar, ítalskar hágæðaflísar frá Álfaborg eru á öllu húsinu og hvítar innihurðir frá Birgison. Flottur sólpallur til suðurs með heitum potti. Samkvæmt HMS er raðhúsið 166,5m2 auk 36,9m2 bílskúrs, samtals 203,4m2.Bókið skoðun hjá Bjarna Blöndal lgf. // 662-6163 // bjarni@remax.isNánari lýsing:Á vinstri hönd úr forstofu er gengið inn í eldhús. Eldhús og stofa flæða saman, inn af stofu er gengið inn á svefnherbergisgang með þremur svefnherbergjum, baðherbergi og þvottahúsi. Til hægri frá forstofu er gestasnyrting og inn af henni er innangengt í bílskúrinn, stór geymsla inn af bílskúr.
Forstofa er rúmgóð með flísum á gólfi.
Eldhús er stórt með sérmíðaðri hvítri, háglans innréttingu frá Beyki, gert er ráð fyrir tveimur uppþvottavélum og tvöföldum ísskáp/frystiskáp í innréttingu, borðplatan er úr fallegum dökkgráum granítstein, stór eyja með hvítri háglans borðplötu sem hægt er að sitja við, spanhelluborð, blástursofn í vinnuhæð og gufugleypir, góð innbyggð lýsing. Inn af eldhúsi er rými sem er nýtt sem fataskápur fyrir útiföt (hægt að nýta sem búr eða geymslu).
Stofan er flísalögð með mikilli lofthæð, útgengt út á skjólgóðan sólpall sem snýr í suðvestur, grillskýli, óhindrað útsýni út á flóann.
Hjónaherbergið er mjög rúmgott með flísum á gólfi, góð lofthæð.
Svefnherbergi#1 með góðri lofthæð, flísar á gólfi.
Svefnherbergi#2 með góðri lofthæð, flísar á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf í gólf, hvít háglans innrétting með vaski, baðkar, flísalögð sturta, handklæðaofn, upphengt wc, vönduð blöndunartæki frá Tengi, flott lýsing.
Þvottahús með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, borð, skolvaskur og hillur, flísar á gólfi.
Gestasnyrting er inn af forstofu á vinstri hönd, upphengt salerni, hvít háglans innrétting með vaski, flísalagt hólf í gólf.
Bílskúr er flísalagður með sömu flísum og húsið, geymsluloft, rafdrifinn bílskúrshurðaropnari.
Geymsla með hillum er inn af bílskúr, flísar á gólfi.
Nánar um innréttingar: Flísar: húsið er allt flísalagt með sérpöntuðum flísum frá Ítalíu í gegnum Álfaborg.
Innréttingar: eldhúsinnréttingarnar eru frá Beyki, baðherbergi er frá Tengi og innihurðar frá Birgisson
Gólfhiti: í öllu húsinu
Eldhús og þvottahús: tvær uppþvottavélar í eldhúsi og tvö tengi fyrir þvottavél og þurrkara í þvottahúsi, tilvalið fyrir stóra fjölskyldu.
Allar upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða bjarni@remax.is.
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar, sjá upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.