Fasteignasalan TORG og Aðalsteinn Bjarna lgf. kynna í sölu afar glæsilegt og nýlegt einbýlishús á tveimur hæðum með tvær aukaíbúðir á jarðhæð auk bílskúrs og stórum þaksvölum í rólegu fjölskylduhverfi, nánar tiltekið við Döllugötu 10 við Reynisvatnsás í Reykjavík. Eignin skiptist í 166 m2 efri hæð með fjórum svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, en á neðri hæð er 59,3 m2, 2 herb aukaíbúð með sérinngangi og 30,6 m2 stúdíó innangengt en einnig með sérinngangi ásamt 61,2 m2 bílskúr, sem einnig er innangengur. Alls er húsið skráð 335 m2 að stærð en auk þess er 45,6 m2 óráðstafað rými sem nýtist í dag sem geymsla. Hljóðdúkur eða hljóðplötur í flestum vistarrýmum ásamt innfelldri lýsingu eða óbeinni lýsingu í loftum efri hæðar. Gólfhiti í öllum gólfum með 60x60 flísum, nema í bílskúr / geymslu þar er epoxy á gólfi og ofnar. Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Bjarna lgf. í gegn um tölvupóst: adalsteinn@fstorg.is eða síma: 773-3532. - Hafið samband og bókið skoðun.Um er að ræða afar vandað og glæsilegt hús þar sem engu hefur verið tilsparað til að gera allt eins hentugt og viðhalslétt sem kostur er á. Húsið er staðsteypt, einangrað að utan, klætt með hvítum og gráum álplötum, dökkar flísar við svalir og á neðri hæð. Gluggar eru áltré. Lóðin er 689 m
2 afgirt beggja megin til hliðar með steyptum veggjum, að aftan og framan eru timburskjólveggir. Bílastæði og gangstétt eru hellulögð með snjóbræðslu undir. Verönd til hliðar við hús á neðri hæð er um 47 m
2 og hellulögð með 50x50 steinhellum. Tunnuskýli fyrir 4 tunnur. Steyptar tröppur beggja megin við hús. Suðurgarður á efri hæð er með hellulagða verönd með 50x50. hellum og um 97 m
2 að stærð og utan með eru lyngþökur. Um er að ræða bæði viðhaldslítið hús og lóð með hellulögn og lyngþökum.
Hverfið í Reynisvatnsásnum er vel staðsett hvað alla útivist varðar. Stutt er í íþróttasvæði Fram í Úlfarsárdalnum og ný sundlaug, Dalslaug er í nágrenninu. Auk þess er hverfið við svokallaðan Grænan trefil sem umlykur höfuðborgarsvæðið. Græni trefillinn er skipulagt útivistarsvæði þar sem skiptast á skógur og opin svæði.Aðalhæðin (efri hæð) er vel skipulögð með alls
fjórum rúmgóðum herbergjum og þar af
hjónasvítu með baðherbergi og ráð gert fyrir fatarými (möguleiki á rennihurð).
Baðherbergi er með bæði gólfsturtu og baðkari ásamt innréttingu og sér
þvottaherbergi er með innréttingu á heilum vegg með borðplötu og vask auk útgengis á þaksvalir. Við stiga er rúmgott
(sjónvarps)hol með hljóðplötum í lofti og innfeldri lýsingu ásamt kamínu með gleri á þrjá vegu og útgengi á stórar
21 m2 svalir með 60x60 útiflísum á gólfi ásamt reyklituðu glerhandriði sem snúa í norðvestur. Þar er fallegt útsýni á Esjuna og Úlfarsfellið.
Í stóru alrýminu eru niðurtekin loft og hljóðdúkur í loftum með innfelldri lýsingu. Í öðrum endanum á alrými er
stórt og opið eldhús með sérsmíðaðri innréttingu með glæsilegri lýsingu þar sem hugsað er fyrir öllum mögulegum þörfum, eins og tækjaskápur með auka skolvaski, tveir eldunarofnar í vinnuhæð hlið við hlið, helluborð með glæsilegu útsýni, stór eyja með miklu skúffuplássi og setuaðstöðu. Í hinum enda alrýmis er svo rúmgóð setustofa og borðstofa með útgengi á
54 m2 suðursvalir (þaksvalir) með 60x60 útiflísum á gólfi og útiarinn ásamt innbyggðri litalýsingu við handrið. Þar er einnig gert
ráð fyrir heitum potti. Af þaksvölum eru steyptar tröppur niður á afar stóra eða um
97 m2 hellulagða verönd með lyngþökum í kring.
Á neðri hæð er inngangur aðalíbúðar og komið er inn í
stórt anddyri með flísum á gólfi og miklu skápaplássi er gengið upp teppalagðan
stiga með dökku glerhandriði upp á efri hæð. Úr anddyri er einnig innangengt bæði í bílskúr og stúdíó íbúð.
Bílskúrinn er afar stór og og inn af honum er c.a 45 m
2 óráðstafað rými ser ekki talið innan heildarfermetra.
Stúdíóíbúð er innangeng en gæti verið með sérinngang. Hún er með smekklegri innréttingu ásamt ísskáp, uppþvottavél, helluborði og bökunarofni. Flísar á gólfum og baðherbergi með innréttingu ásamt gólfsturtu með reyklituðu glerþili og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Auka íbúð (2-3 herb) er með sérinngang og smekklegri innréttingu ásamt ísskáp, uppþvottavél, helluborði og bökunarofni. Svefnherbergi er rúmgott og baðherbergi með innréttingu ásamt gólfsturtu með reyklituðu glerþili og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Handklæðaofn. Geymsla innan íbúðar með glugga.
*** SMELLTU HÉR TIL AÐ SÆKJA SÖLUYFIRLIT FYRIR EIGNINA *** Nánari skipting og lýsing eignarhluta:EFRI HÆÐHol (sjónvarps) er rúmgott við stiga með hljóðplötum í lofti og innfeldri lýsingu ásamt kamínu með gleri á þrjá vegu og útgengi á stórar svalir til norð-vesturs.
Norð-vestur svalir eru c.a 21 m
2 að stærð með 60x60 útiflísum á gólfi ásamt reyklituðu glerhandriði.
Gangur inn af holi er með hljóðplötum í lofti og innfeldri lýsingu og flísum á gólfi.
Hjónasvíta er með með baðherbergi og ráð gert fyrir fataherbergi (möguleiki á rennihurð). Hljóðdúkur í lofti með innb. lýsingu, fataskápur með led lýsingu, sér baðherbergi
flísar á veggjum, innrétting með vask. Upphengt salerni, walk-inn sturta með dökku glerþili, gluggi, handklæðaofn.
Þrjú rúmgóð svefnherbergi með stórum fataskápum og hljóðdúk í lofti með innb. lýsingu.
Baðherbergi með hljóðdúk í lofti og innb. lýsingu. Vönduð innrétting með vask, hár skápur, upphengt salerni, baðkar og walk-inn
sturta með dökku glerþili, handklæðaofn, gluggi.
Þvottaherbergi með hljóðdúk í lofti og innréttingu á heilum vegg með efri og neðri skápa en þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Borðplata með vask og útgengi á þaksvalir. Handklæðaofn.
Stórt og opið eldhús með sérsmíðaða innréttingu frá S.Þ.S. Innréttingin er römmuð inn með reyktri eik. Sér eldunareyja með útsýni ásamt airforce spanhelluborði og innbyggðri viftu. Stór eyja með miklu skúffuplássi og vinnuborði sem hægt er að sitja við. Borðplötur eru úr
stein frá S.Helgason og upp á veggi. Tækjaskápur með vask, innbyggð lýsing, steinn á borði og upp á hliðar. Tveir Samsung ofnar (bakaraofn og combiofn) báðir í vinnuhæð. Innbyggður ísskápur og frystiskápur. Uppþvottavél innbyggð í vinnuhæð. Niðurtekið loft með innbyggðri lýsingu. Innbyggð led lýsing undir borðplötu og undir skápum.
Setu og borðstofa með glugga á þrjá vegu og hljóðdúk í lofti með innb. lýsingu. Rennihurð út á stórar þaksvalir.
Stórar þaksvalir með 60x60 útiflísum á gólfi og útiarinn ásamt innbyggðri litalýsingu við handrið. Gengið niður tröppur í garð.
Garður með afar stóra eða um 97 m
2 hellulagða verönd með lyngþökum í kring.
NEÐRI HÆÐ
Forstofa (aðal) með flísum á gólfi og innfelldri lýsingu í lofti ásamt miklu skápaplássi er gengið upp teppalagðan stiga með dökku glerhandriði upp á efri hæð. Úr anddyri er einnig innangengt bæði í bílskúr og stúdíó íbúð.
Bílskúrinn er afar stór með skápainnréttingu og vinnuborði. Inn af honum er c.a 45 m
2 óráðstafað rými ser ekki talið innan heildarfermetra.
Stúdíóíbúð er innangeng en gæti verið með sérinngang á vesturhlið.
Eldhús er opið með smekklegri innréttingu ásamt ísskáp, uppþvottavél, helluborði og bökunarofni.
Baðherbergi er með innréttingu ásamt gólfsturtu með reyklituðu glerþili og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Handklæðaofn.
Auka íbúð (2-3 herb) er með sérinngang.
Eldhús er með smekklegri innréttingu ásamt ísskáp, uppþvottavél, helluborði og bökunarofni. Baðherbergi með innréttingu ásamt gólfsturtu með reyklituðu glerþili og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.Handklæðaofn. Svefnherbergi rúmgott. Geymsla innan íbúðar með glugga.
Lóðin er 689 m
2 að stærð og afgirt beggja megin til hliðar með steyptum veggjum, að aftan og framan eru timburskjólveggir. Bílastæði og gangstétt eru hellulögð með snjóbræðslu undir. Verönd til hliðar við hús á neðri hæð er um 47 m
2 og hellulögð með 50x50 steinhellum. Tunnuskýli fyrir 4 tunnur. Steyptar tröppur beggja megin við hús.
*** SMELLTU HÉR FYRIR FRÍTT VERÐMAT OG SÖLURÁÐGJÖF ***Allar nánari upplýsingar veita:Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali / s.773-3532 / adalsteinn@fstorg.is
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali / s.856-5858 / margret@fstorg.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.