DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 27. okt. 2026

Veghús 31

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
92.2 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
68.900.000 kr.
Fermetraverð
747.289 kr./m2
Brunabótamat
47.350.000 kr.
Byggt 1991
2. hæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20407942
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Háborg fasteignasala, Kristín Högna, nemi í löggildingu fasteignasala, og Þórunn Pálsdóttir  löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu bjarta og vel skipulagða íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi við Veghús 31. Staðsetningin er afar góð, stutt í alla helstu þjónustu og fallegar gönguleiðir. Umhverfi hússins er rúmgóð lóð og við það er stórt bílaplan með fjölda bílastæða.

Skráning hjá HMS:

Íbúðin er 92,20 fm. Það eru 2 svefnherbergi og 2 stofur. Möguleiki er á að bæta við vegg og útbúa þannig eitt herbergi til viðbótar. Geymsla er skráð 5,2 fm.

Húsið:
Veghús 31 er 11 hæða hús með lyftu og er staðsett í Grafarvogi. Byggingarár er 1991. Húsvörður starfar í húsinu. Samkvæmt seljanda komu nýjar lyftur árið 2025, teppi á sameigninni var skipt út og sameign var máluð. Geymsla fylgir íbúðinni og er á sömu hæð. 

Inngangur:
Við hlið inngangs íbúðarinnar er rúmgóð geymsla sem fylgir eigninni. Forstofa er rúmgóð og þar er gott pláss fyrir yfirhafnir og skó.

Gangur:
Á ganginum á milli inngangs og stofu er gert er ráð fyrir sjónvarpsholi með tenginu fyrir sjónvarp.

Eldhús:
Virkilega opið og bjart eldhús með eyju sem hægt er að sitja við. Tímalaus eldhúsinnrétting og flottar flísar á gólfi. Frá eldhúsi er búr með þvottaaðstöðu og geymsluplássi.

Þvottahús/búr:
Þar er vaskur og gott geymslupláss ásamt aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. 

Stofa:
Stofan er mjög rúmgóð og þar er útgengt á stórar flottar suður svalir. Margir gluggar birta íbúðina og frábært útsýni. Skipt var um parket árið 2024 samkvæmt seljanda. 

Herbergi: 
Tvö rúmgóð og björt herbergi í íbúðinni með fataskápum. Gluggar nýlega endurnýjaðir í svefniherbergjum. 

Baðherbergi:
Baðherbergi var gert upp árið 2019 samkvæmt seljanda. Mjög flott og snyrtilegt baðherbergi með nútímalegum flísum og innréttingum. Rúmgóð og glæsileg sturta með glerskilrúmi.

Húsfélag:
Í húsinu er virkt húsfélag, mánaðarleg útgjöld eru kr: 54.468 (þar af 36.000kr í söfnuð fyrir framkvæmdarsjóð vegna komandi viðhalds á húsinu).

Hverfið:
Veghús 31 er vel staðsett í Grafarvogi, í rólegu og fjölskylduvænu umhverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir, skóla og leikskóla. Í nágrenninu eru fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði sem bjóða upp á góða möguleika til útivistar og hreyfingar. Samgöngur eru góðar og stutt labb í strætó.

Nánari upplýsinga veitir Kristín Högna nemi í löggildingu, sími 895-8511 og kristinhogna@haborg.is og Þórunn Páls lgf í síma 773-6000 eða thorunn@haborg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Háborg fasteignasala ehf
https://www.haborg.is

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Rauðavað 13
Opið hús:01. nóv. kl 12:00-12:30
Skoða eignina Rauðavað 13
Rauðavað 13
110 Reykjavík
92,5 m2
Fjölbýlishús
211
811 þ.kr./m2
75.000.000 kr.
Skoða eignina Rauðavað 13
Opið hús:01. nóv. kl 12:00-12:30
stebbi_vefur.jpg
Skoða eignina Rauðavað 13
Rauðavað 13
110 Reykjavík
92,5 m2
Fjölbýlishús
211
811 þ.kr./m2
75.000.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7D íb.005
Eirhöfði 7D íb.005
110 Reykjavík
91,3 m2
Fjölbýlishús
32
919 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Skoða eignina Breiðhöfði 17
Opið hús:29. okt. kl 17:00-17:30
kjartan_vefur-406.jpg
Skoða eignina Breiðhöfði 17
Breiðhöfði 17
110 Reykjavík
108 m2
Fjölbýlishús
413
1110 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin