-Tvö einkabílastæði með hleðslustöð
-Aukaíbúð
-Svalir og sérafnotareitur
-Nýleg eign á góðum stað
-Laus straxÞriggja hæða, sex herbergja séreign í Vogahverfi með svalir í vestur.
180,9 fm samkvæmt HMS.
Raðhúsið er með þremur baðherbergjum, tvö þeirra með opnum sturtum og eitt með baðkari.
Möguleiki er á útleigutekjum í eigninni.
Alrými og herbergi eru parketlögð en stigagangur innan íbúðarrýmis er teppalagður.
Anddyri, baðherbergi og þvottahús eru öll flísalögð.
Einstaklega lífleg og skemmtileg eign nálægt grænum svæðum í borginni og smábátahöfninni.
Nánari upplýsingar veita:
Ævar Jóhanns Lgf. s: 861-8827 eða aj@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í síma nr 775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
Nánar um eignina:
JarðhæðSérinngangur hjá einkabílastæðunum.
Gengið er inn í flísalagt
anddyri.
Þvottahús með tengi fyrir þvottavél og þurrkara er flísalagt, með hvítri innréttingu og upphengi aðstöðu.
Sérgeymsla er í sameign hússins.
1. HæðEinnig er sérinngangur á fyrstu hæð, gengið er inn í flísalagða
forstofu með fataskáp.
Eldhús er parketlagt með hvítum og sérlega smekklegum innréttingum frá HTH þar sem uppþvottavél er innfelld. Borðplata er úr ljósum steini.
Útgengt er úr eldhúsi út á fallegan sérafnotareit sem snýr í vestur. Leyfi er til að yfirbyggja reitinn með garðskála.
Eldhúsið flæðir svo saman við stofu eftir gangi þar sem einnig er baðherbergi.
Stofan er með notalegu holi og góðu plássi fyrir sjónvarpsaðstöðu.
Baðherbergið er mjög stílhreint og flísalagt með ljósum flísum. Innréttað með opinni sturtu, lítilli innréttingu með fallegum blöndunartækjum og steinborðplötu, spegli með lýsingu, upphengdu salerni og handklæðaofni.
Frá ganginum er gengið upp á efri hæð.
2. HæðGengið upp hlýlegan og teppalagðan
stigagang innan íbúðarrýmis inn á svefnherbergisgang.
Þar er
hol með skrifstofu aðstöðu og útgengt út á
svalir.
Þrjú svefnherbergi, öll parketlögð með skápum.
Baðherbergið er keimlíkt því á fyrstu hæð en þó með stærri innréttingu og einnig innréttað með baðkari í stað opinnar sturtu.
AukaíbúðEr með
sérinngangi á jarðhæð. Gengið er inn frá Súðarvogi inn í parketlagða
forstofu með góðum fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt á gólfi og á álagsflötum í opnu sturturými. Falleg steinborðplata er á vaskinnréttingu, spegill með lýsingu, upphengt salerni og handklæða ofn.
Hverfi sem hefur fengið mikla yfirhalningu undanfarin misseri og er einstaklega vel staðsett með tilliti til flestrar þjónustu.
Stutt í Laugardalinn og Elliðaárdalinn ásamt grænu svæði og smábátahöfninni.
Leikskóli er í göngufæri.
Tvö einkastæði sem er orðið gulls ígildi í Reykjavík.
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.