
Heima fasteignasala kynnir Valshlíð 3 – Íbúð 312.
Verð miðast við Sameignaleið S8 ehf. – 75% kaup. Fullt verð: 112.900.000 kr.
Íbúðin er staðsett í fyrsta áfanga Hlíðarhorns, nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Afhending hafin.
S8-Sameign í boði:
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Sendu fyrirspurn á heimaf@heimaf.is eða hringdu í síma 5832000 og fáðu allar upplýsingar um íbúðina. Hafðu samband og bókaðu skoðun hjá okkur.
3ja herbergja horníbúð með útsýni á 3. hæð á horni Hlíðarhorns (vestur/suður), 103,6 fm (þar af 7,6 fm geymsla í kjallara). Íbúðin skiptist í anddyri, gang, eldhús með eyju og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á suðursvalir, 2 svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens og Witt, ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie og gólfefni frá Álfaborg. Sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema: Hlíð 2.
Í anddyri eru góðir fataskápar. Rúmgott alrými með eldhúsi með eyju og stofu/borðstofu með gólfsíðum gluggum og útgengi á suðursvalir. Svarbrún eldhúsinnrétting með viðaráferð, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa, ítölsk blöndunartæki úr byssubláu stáli. Innbyggður ísskápur. Hjónaherbergi með skápum. Svefnherbergi með skáp. Baðherbergi með walk-in sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar, svarbrún innrétting með viðaráferð og speglaskápur með lýsingu. Innbyggð blöndunartæki úr byssubláu stáli. Afþiljuð aðstaða á baði fyrir þvottavél og þurrkara. Sérgeymsla í kjallara (0045). Sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með samnýtingu þar sem íbúar hafa forgang.
Verð miðast við Sameignaleið S8 ehf. – 75% kaup. Fullt verð: 112.900.000 kr.
ATH. Kaupendur greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.
Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru með sér loftræsikerfi og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.
Heimasíða verkefnis: Hlíðarhorn
Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.
ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu aðalverktaka og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir úr auglýstri íbúð geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingaþema.
Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.
Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
221 | 122,4 | 79,5 | ||
221 | 87,1 | 65,9 | ||
220 | 117,7 | 95 | ||
210 | 92,8 | 72,9 | ||
105 | 112,3 | 114,9 | ||
105 | 36,6 | 45 |