DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 26. mars 2026

Langirimi 11

SumarhúsSuðurland/Selfoss-805
34.2 m2
1 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
29.900.000 kr.
Fermetraverð
874.269 kr./m2
Fasteignamat
21.850.000 kr.
Brunabótamat
23.650.000 kr.
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2529572
Landnúmer
236516
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýlegt
Raflagnir
Nýlegt
Frárennslislagnir
Nýleg rotþró
Gluggar / Gler
Nýlegt
Þak
Nýlegt þakjárn
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Sólpallur
Upphitun
Hitaveita, gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Lítilsháttar skemmd er í parketi við baðherbergi.
ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:
Langarima 11, 805 Selfoss, fastanúmer 252-9572 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. 

Virkilega fallegt og vel hannað frístundahús með stórkostlegu útsýni og miklum tekjumöguleikum.
Um er að ræða einstaklega smekklegt og vel skipulagt 34,2 fm frístundahús, nýlega byggt og staðsett á eftirsóttu rekstrarleyfissvæði þar sem heimilt er að stunda skammtímaleigu. Eignin sameinar einstaka náttúruupplifun, næði og afar áhugavert fjárfestingartækifæri.

Húsið er mjög vel skipulagt þar sem hver fermetri nýtist til fulls. Klætt að utan með brasilískum harðvið auk þess eru nokkrir veggir inni klæddir fallegum harðvið. Eignin samanstendur af mjög björtu alrými, þar er stofa, borðkrókur og nýlegt eldhús, rúmgóðu svefnherbergi með klæðaskáp og tvíbreiðri koju, nýlegu baðherbergi með sturtu. Alrými hefur stóra glugga og dásamlegt útsýni. Innréttingar í eldhúsi eru nýlegar, svarbrún viðaráferð og spanhelluborð. Nýr sólpallur umlykur húsið, með heitum potti og grillaðstöðu.

Helstu kostir eignarinnar:
• 34,2 fm nýlegt og vel skipulagt heilsárshús, klætt harðvið
• Gott svefnherbergi með klæðaskáp og tvíbreiðri koju
* Nýlegt baðherbergi með sturtu
• Staðsett á rekstrarleyfissvæði (Airbnb heimilt)
• Fyrirliggjandi bókanir ~2 m.kr (sumar 2026)
• Selt fullbúið húsgögnum – tilbúið í rekstur
• Hitaveita, gólfhiti, rafmagn og ný rotþró
• Nýr pallur með heitum potti og grillaðstöðu
• Stórkostlegt útsýni til fjalla, m.a. Heklu

Nánari upplýsingar: Unnur Svava Sverrisdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 868-2555, tölvupóstur unnur@allt.is.
 
Frá húsinu er stórkostlegt útsýni yfir Laugarvatnsfjallgarðinn og Heklu, sem skapar einstaka upplifun allt árið um kring og eykur aðdráttarafl eignarinnar fyrir gesti. Húsið er staðsett á sumarhúsalandi við Stangarlæk, milli Apavatns og Svínavatns. Einstaklega vel staðsett í Gullna hringnum.

Húsið selst fullbúið með öllum húsbúnaði, þar á meðal eldhúsbúnaði, sængurbúnaði, handklæðum o.fl., og er því tilbúið til útleigu eða eigin nota frá fyrsta degi. Húsið er tengt hitaveitu og er með gólfhita, rafmagn og nýja rotþró sem tryggir þægindi og hagkvæman rekstur. Rafmagnshlið er inn á svæðið. 

Eignin hefur þegar sannað rekstrargetu sína og liggja fyrir staðfestar bókanir fyrir sumarið að andvirði um 2 milljóna króna sem geta fylgt með í kaupum. Einnig er hægt að taka við Airbnb reikningi þar sem eignin er með 4.97 í einkunn og superhost með 18 umsagnir. Hér er því um að ræða eign sem getur byrjað að skila tekjum strax.

Um er að ræða einstaka eign fyrir þá sem vilja sameina eigin not og arðbæra fjárfestingu í einni og sömu eigninni, allt árið um kring – á svæði þar sem eftirspurn eftir skammtímaleigu er mikil.


Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 


 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
07/01/202518.300.000 kr.11.000.000 kr.34.2 m2321.637 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
ALLT FASTEIGNIR ehf
http://www.allt.is

Myndir (27)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Jötnagarðsás 35
Jötnagarðsás 35
311 Borgarnes
132.3 m2
Sumarhús
413
438 þ.kr./m2
57.900.000 kr.
Skoða eignina Hellisbraut 19
Bílskúr
Skoða eignina Hellisbraut 19
Hellisbraut 19
360 Hellissandur
130.5 m2
Einbýlishús
412
214 þ.kr./m2
27.900.000 kr.
Skoða eignina Háahlíð 1
Skoða eignina Háahlíð 1
Háahlíð 1
311 Borgarnes
82.6 m2
Sumarhús
413
599 þ.kr./m2
49.500.000 kr.
Skoða eignina Þverásbyggð 19
Þverásbyggð 19
311 Borgarnes
23 m2
Sumarhús
Fasteignamat 11.650.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin