ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu virkilega smekklega og bjarta 3ja herbergja 85 fm. íbúð á annarri hæð að Hólmgarði 2 í Keflavík. Eignin hefur verið töluvert endunýjuð á síðustu árum. Stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Nánari upplýsingar veita:
Helgi Bjartur Þorvarðarson Löggiltur fasteignasali/Lögfræðingur í síma 770-2023, tölvupóstur helgi@allt.is
Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur pall@allt.is* Endurnýjað baðherbergi
* Þvottahús á sömu hæð
* Sér geymsla og sameiginleg hjóla/vagna geymsla
* Snyrtileg sameign
* Suðursvalir með útsýni
* Vinsæl staðsetning
Nánari lýsing eignar:Forstofa: Er rúmgóð með góðum fataskáp
Eldhús: Er með smekklegri eikar innréttingu
Stofa: Er með harðparketi á gólfi og útgengt er á svalir
Baðherbergi: Er flísalagt, ,,walk in" sturtu og góðri hvítri innréttingu
Hjónaherbergi: Er rúmgott með góðum fataskáp og harðparketi á gólfi.
Barnaherbergi: Er með harðparketi á gólfi og fataskáp
Sameiginlegt
þvottahús er á hæðinni
Geymsla fylgir íbúðinni
Sameiginleg hjóla-og vagnageymslaVertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.