GIMLI KYNNIR MJÖG FALLEG OG VEL SKIPULÖGÐ 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ Í HÚSI BYGGÐU 2013, Á MJÖG GÓÐUM STAÐ INNAN HVERFS, INNST Í BOTNLANGA MEÐ ÚTSÝNI YFIR YLSTRÖNDINA - ÍBÚÐINNI FYLGIR STÓRT STÆÐI Í LOKAÐRI BÍLAGEYMSLU
Myndband um eignina má sjá hér
Nánari lýsing; Komið er inn í 
forstofu/hol með skáp. Rúmgóð 
stofa, sem skiptist í 
sjónvarpshol, borðstofu og stofu, þaðan sem útgengt er á stórar 
svalir til suðurs með svalarlokun.
Eldhús opið í stofu með fallegri innréttingu og innbyggðri uppþvottavél. Flísalagt 
baðherbergi með innréttingu og "walk in" sturtu. 
Þvottaherbergi með hillum.
Svefnherbergin eru tvö bæði með skápum.
Gólfefni; Harðparket er á öllum gólfum nema baðherbergi og þvottahús þar eru flísar.
Íbúðinni fylgir stórt 
stæði í lokaðri bílageymslu þar sem búið er að tengja rafhleðslustöð. 
Geymsla íbúðar er inn af stæði í bílageymslu.
Fasteignamat fyrir árið 2026 er kr. 106.100.000Í heild er um að ræða mjög góða íbúð í snyrtilegu húsi á góðum stað í Sjálandshverfi Garðabæjar.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR ELLERT S. 661-1121 EÐA Á SKRIFSTOFU S. 570-4800, ellert@gimli.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. 
Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.000,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.