Fasteignasalan TORG kynnir: Hugguleg, björt og mikið endurnýjuð tveggja herbergja íbúð á 1.hæð við Hólabraut 3 í Hafnarfirði. Eignin er skráð 61,3 fm og skiptist í svefnherbergi, baðherbergi, alrými með stofu og eldhúsi ásamt 9,4 fm geymslu í kjallara. Íbúðin er opin og vel skipulögð þar sem hver fermetri nýtist vel. Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali í síma 767-0000 eða í tölvupósti: darri@fstorg.is
***Fyrirhugað fasteignamat 2026 er 48.750.000 kr*** Nánari lýsing:Komið er inn í forstofu/gang með nýlegu harðparketi á gólfi sem þekur alla íbúðina fyrir utan bað. Baðherbergi með nýlegum flísum á gólfi og veggjum, baðkar m/sturtu yfir, nýlegt salerni og handklæðaofn. Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskáp. Nýlegt eldhús L-laga (opið concept) með hvítri innréttingu og dökkri hlýlegri viðarborðplötu. Björt stofa með stórum glugga, útgengið á rúmgóðar svalir sem snúa í suður. Sér geymsla í kjallara ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu og þurrkherbergi. Sameiginlegt þvottahús með tveimur öðrum íbúðum er á sömu hæð og íbúðin, örstutt frá. Stigagangur í sameign er snyrtilegur. Flísalagður við inngang á jarðhæð og teppalagður stigi. Sameiginlegur garður framan og bakvið hús. Leiksvæði fyrir börn er ofan við húsið. Stutt er í alla helstu þjónustu. Má þar nefna matvöruverslun (Krónan) í 3 mín göngufjarlægð, Suðurbæjarlaug 3 mín og Fjörðurinn verslunarmiðstöð 10 mín göngufjarlægð.
Eignin var mikið endurnýjuð árið 2020 skv eftirfarandi:Rafmagn endurnýjað í öllum herbergjum. Nýir vírar þræddir í veggi, tenglar og lok fyrir ljósrofa og innstungur. Nýjum tenglum bætt við í eldhúsi og stofu. Nýtt harðparket og listar frá Parki ehf á allt gólf fyrir utan baðherbergi. Nýjar innihurðir frá Birgisson ehf á bað- og svefnherbergi. Nýjar rimlagardínur í stofu, eldhúsi og svefnherbergi sérsmíðaðar frá Sólargluggatjöldum ehf. Allir veggir og loft máluð í íbúð og geymslu. Veggur milli eldhúss og stofu fjarlægður til að skapa opið rými. Skipt var um gler eftir þörfum. Inn á baðherbergi var skipt um allar flísar og settur var nýr vaskaskápur, handlaug og blöndunartæki. Skipt var um salerni og handklæðaofn. Ný ljós, loftræstilok og sía. Eldhúsið var endurnýjað með nýrri innréttingu frá Ikea. Þar er nýr vaskur og blöndunartæki, nýr bakaraofn og helluborð frá Whirlpool. Svalahurð pússuð upp og lökkuð. Ný gluggafilma og stál-kanthlíf yfir þröskuld.
Viðhald utanhúss (sameign):-Sumarið 2021 voru þakrennur endurnýjaðar.
-Sumarið 2022 var ráðist í umfangsmiklar steypuviðgerðir og málun á öllum veggjum hússins ásamt svölum, svalagólfum og handriðum. Allir gluggalistar einnig málaðir.
-Sumarið 2024 var umfangsmikil framkvæmd á þaki þar sem skipt var um allt þakjárn (nýtt bárustál), nýr pappi, tvær lofttúður og allar áfellur í kringum húsið.
-Sumarið 2025 var skipt um glugga og svalahurðir í tveimur íbúðum.
Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali í síma 767-0000 eða í tölvupósti: darri@fstorg.is