Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Tjarnabakka 4, 260 Reykjanesbæ.
Skemmtileg og vel skipulögð endaíbúð á neðri hæð í tveggja hæða fjölbýlishúsi með sérinngangi, á góðum stað í Innri-Njarðvík, nálægt skóla og leikskóla. Björt stofa og eldhús í opnu rými, stór afgirtur pallur, þrjú svefnherbergi (möguleiki að útbúa fjórða herbergið), þvottahús og geymsla innan íbúðar, ásamt annarri sér geymslu og bílskúr. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
SELD MEÐ FYRIRVARA UM FJÁRMÖGNUN
Bókið skoðun á netfanginu erla@es.is eða í síma 869-1808.
Nánari lýsing:
Eignin er skráð 151,5 fm, þar af er íbúðarhluti 128,4 fm og bílskúr 23,1 fm.
Forstofa er með gráum flísum á gólfi og fataskáp.
Rúmgóður gangur og hol eru með parketi á gólfi og þar er möguleiki að hafa sjónvarpshol eða útbúa fjórða svefnherbergið.
Stofa og eldhús eru í opnu björtu rými. Parket á gólfum og gólfsíðir gluggar með hurð út á stóran og skjólgóðan pall sem er afgirtur með hurð út í garð. Eldhúsið er með eikarinnréttingu, eyju með helluborði, bakaraofni í vinnuhæð og gluggum sem snúa út í garð.
Baðherbergi er flísalagt hólf í gólf, með innréttingu, baðkari og upphengdri sturtu.
Þrjú rúmgóð svefnherbergi, öll með skápum og parketi á gólfum.
Af ganginum eru einnig þvottahús annars vegar og geymsla hins vegar bæði með flísum á gólfi.
Lóðin er snyrtileg og barnvæn, með leiktækjum. Í sameignarrými er sameiginleg hjólageymsla og þar er einnig að finna sér geymslu sem tilheyrir íbúðinni. Íbúðinni fylgir síðan 23,1 fm bílskúr í góðu standi, nýmálaður, með rafmagni, heitu vatni og vaski.
Virkilega skemmtileg og spennandi eign á góðu verði. Frábær staðsetning nálægt skóla og leikskóla.
Nánari upplýsingar veitir:
Erla María Guðmundsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Netfang: erla@es.is
Sími: 869-1808
------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við brýnum því fyrir kaupendum að skoða fasteignir vel fyrir tilboðsgerð og leita sér viðeigandi aðstoðar sérfræðinga þegar ástæða þykir til.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali skoðar eignina og sannreynir upplýsingar frá seljanda með sjónskoðun. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.