ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu 4ja herbergja íbúð í innri Njarðvík í Stapaskólahverfinu. Stutt er í alla helstu þjónustu og er skóli og leikskóli í göngufæri. Birt stærð er 97,8 fm.Nánari upplýsingar veita:
Helgi Bjartur Þorvarðarson
Löggiltur fasteignasali/lögfræðingur
helgi@allt.is
770-2023
Páll Þorbjörnsson
löggiltur fasteignasali
pall@allt.is
560-5501Nánari lýsing:Forstofa er flísalögð með góðum fataskáp.
Hol er með parket á gólfi.
Alrýmið skiptist í Eldhús, stofu og borðstofu sem eru í opnu björtu rými með stórum gluggum og útgengt er út á verönd.
Eldhúsið er virkilega smekklegt með parket á gólfi, góðri eldhúsinnrétting með uppþvottavél, helluborði, viftu og ofni.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með fallegum gráum flísum, sturtu með sturtuskilrúmi úr gleri á eina hlið, upphengdu salerni, ljósaspegil, handklæðaofni og smekklegri baðherbergisinnréttingu. Innanaf baðherberginu er gengið inn
Þvottahús með góðri hvítri innréttingu með vaski og miklu skápaplássi.
Hjónaherbergið er parketlagt með góðum skápum.
Barnaherbergi I er parketlagt með fataskáp.
Barnaherbergi II er parketlagt (ath þetta svefnherbergi var upphaflega geymsla)
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.Merkt bílastæði. ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.