Skarðshlíð 14 - Björt og mikið uppgerð íbúð á 3. hæð (efstu) í fjölbýlishúsi í Þorpinu- Stærð 84,6 m².
Eignin skiptist með eftirfarandi hætti:
Forstofa, eldhús, stofa, svefnherbergi, tvö svefnherbergi, baðherbergi, geymsla innan íbúðar og geymsla í sameign.
Forstofa er með opnu fatahengi og flísum á gólfi
Eldhús er með nýlegri ljósri innréttingu, flísar eru á milli skápa sem og á gólfi.
Stofa er nokkuð rúmgóð, þar er stórir gluggar til suður, harðparket er á gólfi. Úr stofu er útgengt á suður svalir.
Svefnherbergin eru tvö, og er annað þeirra með mjög rúmgóðum skápum. Harðparket er á gólfi.
Baðherbergi er með dökkri innréttingu, upphengdu wc og walk-in sturtu, þar er góð innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar er á gólfi og á veggjum.
Geymslur, tvær geymslur fylgja íbúðinni, innan íbúðar er lítil geymsla við enda gangs, þar eru hillur á veggjum og harðparket á gólfi, einnig er sér geymsla, 6,9 m² í sameign, þar eru álhillur sem fylgja með við sölu eignar og tenglar.
Eignin hefur verið talsvert uppgerð á síðustu árum og má þar nefna að nýlega eldhúsinnréttingu, skipt hefur verið um öll gólfefni íbúðar, baðherbergi gert upp og sett upp aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara, skipt um innihurð á baðherbergi.
Annað:
- Góð staðsetning, stutt er í verslanir, skóla, leikskóla og íþróttasvæði Þórs.
- Ljósleiðari kominn inn og tengdur.
- Allt innbú utan fárra persónulegra muna mun/getur fylgt með við sölu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.