Melasíða 5j - 2ja herbergja íbúð á 3. hæð í Síðuhverfi á Akureyri - samtals 61,9 m² að stærð.
Sér inngangur er í íbúðina af sameignlegum stigapalli.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður H. Þrastarson - siggithrastar@kaupa.is - 888-6661Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi og eitt svefnherbergi auk sérgeymslu á jarðhæð.Forstofan er innaf sérinngangi af opnum stigapalli og þar er fatahengi.
Stofan er með plastparketi á gólfi og úr stofu er útgangur á rúmgóðar svalir til suð-vesturs - nýlegar er búið að endurnýja handrið.
Eldhúsið er með snyrtilegri viðarinnréttingu og plastparketi á gólfi. Opið er á milli stofu og eldhúss.
Svefnherbergið er með góðum fataskápum og plastparketi á gólfi.
Baðherbergið er flísalagt, með nýlegum skáp undir vaska, baðkar með sturtutækjum og hengi, og á baðherberginu er tengi fyrir þvottavél.
Sérgeymsla er á jarðhæð.
Annað- Eignin er í útleigu. Leigusamningur til 1.9.2026
- Stutt er í skóla og leikskóla.
- Gott útsýni
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.