Sólbakki 2B íbúð 0104, Neskaupstað: 78,0 m², 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og steyptri verönd í fjölbýlishúsi frá 2024.
Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.isÍbúðin er í 11 íbúða húsi á tveimur hæðum sem byggt var 2024 og var afhent fullbúin haustið 2024; seljandi er fyrsti eigandi. Opið alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi með eyju, tvö svefnherbergi og þvottahús inn af baðherbergi. Vínilparket og flísar á gólfum og rafmagnsgólfhiti í forstofu og á baðherbergi. Íbúðin var innréttuð með aðgengi hreyfihamlaðra í huga og aðgengi að og innan íbúðar er gott; laus aðgengisbúnaður á baðherbergi (stuðningsslár og sturtustóll) er auðfjarlægjanlegur. Útgengt er úr stofu á steypta verönd mót suðri með timburskjólveggjum.
SKIPULAG EIGNAR:Forstofa: Flísar á gólfi, rafmagnsgólfhiti og þrefaldur fataskápur.
Stofa og borðstofa: Opið alrými með eldhúsi. Vínilparket á gólfi. Útgengt á steypta verönd mót suðri sem er afmörkuð með timburskjólveggjum.
Eldhús: Innrétting frá Brúnás með eikaráferð og eyju. Helluborð í eyju, ofn í vinnuhæð og stálvaskur með einnar handar blöndunartæki. Tenging fyrir háf yfir eyju og gert ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Hjónaherbergi: Fimmfaldur fataskápur. Vínilparket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Tvöfaldur fataskápur. Vínilparket á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og flísalagt sturtuhorn. Upphengt salerni, vaskinnrétting með speglaskáp og rafmagnsgólfhiti.
Þvottahús: Inn af baðherbergi, innrétting með plássi fyrir tvær vélar og stálvaskur í borði. Flísar á gólfi.
Geymsla: Sérgeymsla (3,6 m²) í sameign á jarðhæð. Rafmagnshitakútur íbúðarinnar er í geymslunni.
Sameign og lóð: Hjóla- og vagnageymsla í sameign; þar eru einnig sér rafmagnsmælar allra íbúða. Íbúðin hefur lóðarsérnotahluta sem nær 3 metra út frá útvegg og steypta veröndin stendur á honum. Bílastæði eru 14, óskipt, þar af tvö fyrir hreyfihamlaða; lagnaleiðir fyrir rafhleðslustöðvar liggja að öllum stæðum.
Sólbakki 2 er byggt úr forsteyptum einingum. Þak er uppstólað risþak með báruklæðningu. Gluggar og útihurðir eru timbur/ál með tvöföldu K-gleri. Hljóðdúkur í lofti. Kynding er rafmagn með sér mæli.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband:
Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.isSkráning eignarinnar skv. HMS:Fasteignanúmer: F2530532
Stærð: Íbúð 78,0 m² (þar af geymsla 3,6 m²)
Byggingarár: 2024
Byggingarefni: Forsteyptar einingar
Gildandi fasteignamat: 36.100.000 kr. (fyrirhugað fasteignamat 2027: 39.750.000 kr.)
Brunabótamat: 52.600.000 kr.
Lóð: Íbúðarhúsalóð, sameiginleg leigulóð í eigu Fjarðabyggðar, stærð lóðar er 1.514,6 m²
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaupendur) 0,8% (einstaklingar) 1,6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.
Skoðunarskylda kaupenda:Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Fasteignasala Austurlands skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak o.s.frv.
Fasteignasala Austurlands // Austurvegi 21, 730 Reyðarfirði