DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 20. júní 2026

Svarthamrar 58

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
92.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
73.900.000 kr.
Fermetraverð
799.784 kr./m2
Fasteignamat
66.550.000 kr.
Brunabótamat
51.000.000 kr.
Mynd af Margrét Rós Einarsdóttir
Margrét Rós Einarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2038851
Landnúmer
109107
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta - * sjá lýsingu
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta - * sjá lýsingu
Þak
endurnýjað að hluta - * sjá lýsingu
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Sérafnota reitur með afgirtri verönd í suðaustur
Upphitun
Hitaveita og ofnakerfi
Inngangur
Sérinngangur
Margrét Rós lgf. og Fasteignasalan TORG kynna í sölu bjarta og vel skipulagða 3 herbergja íbúð með sérinngangi og skjólgóðum palli við Svarthamra 58 í Grafarvogi. Um er að ræða íbúð á jarðhæð í vel góðu fjölbýlishúsi á eftirsóttum stað í Hamrahverfi. Íbúðin skiptist í forstofu, tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, opið eldhús, stofu og borðstofu með útgengi á skjólgóðan pall. Sérgeymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla eru í sameign hússins. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós Löggiltur fasteignasali, í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is - *** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR *** 

Birt stærð eignar skv. fasteignaskrá HMS er 92,4 m² og eru allir innan íbúðar. Sérgeymsla sem tilheyrir eigninni skv eingaskiptalýsingu er ekki innan fermetratölu.

Staðsetning
Svarthamrar eru á vinsælum og fjölskylduvænum stað í Grafarvogi þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, íþróttasvæði, verslanir og alla helstu þjónustu. Fallegar göngu- og hjólaleiðir eru í næsta nágrenni og góð tenging við helstu samgönguæðar höfuðborgarsvæðisins. Um er að ræða vel skipulagða og nokkuð endurnýjaða íbúð með sérinngangi og skjólgóðum palli á eftirsóttum stað í Grafarvogi.

FÁÐU FRÍTT VERÐMAT Á ÞÍNA EIGN HÉR

Nánari lýsing
Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús er opið við stofu og borðstofu með viðar innréttingu, góðu skápaplássi og flísar á vegg milli efri og neðri skápa og harðparket á gólfi.
Stofa og borðstofa eru samliggjandi með harðparket á gólfi og útgengi út á skjólgóðan pall.
Svefnherbergi I er rúmgott með harðparket á gólfi.
Svefnherbergi II er einnig rúmgott með harðparket á gólfi og góðum fataskápum.
Baðherbergi með nýlegri innréttingu, handlaug, upphengdu salerni, inngengri sturtu og sturtugleri, flísum á gólfum og veggjum ásamt innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.
Pallurinn sem snýr til suðurs og austurs er skjólgóður og afgirtur með skjóveggjum.
Sérgeymsla er í sameign hússins, ekki skráð innan heildarfermetra eignar.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.

Framkvæmdir og viðhald á húsi:
Á síðustu árum hefur verið farið í umfangsmikið viðhald á húsinu. Meðal annars voru gluggar voru teknir í gegn á pallahliðinni árið 2018, gaflar á húsi endurklæddir, skipt hefur verið um þakrennur og árið 2025 var farið í viðgerðir á þaki þar sem gert var við ryð og skipt um hluta þakklæðningar. Jafnframt hafa verið gerðar úrbætur í kjölfar ástandsskoðunar sem framkvæmd var af Verkís árið 2022.

Endurbætur á íbúð:
Eignin hefur verið nokkuð endurnýjuð á síðustu árum, meðal annars var baðherbergi endurnýjað að mestu árið 2024, veggur milli eldhúss og stofu tekinn niður sama ár sem opnaði alrýmið, veggir málaðir árið 2025 og nýtt parket lagt ásamt því að loft voru máluð árið 2026.

Nánari upplýsingar veita:
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali / s. 856-5858 / margret@fstorg.is
Darri Örn Hilmarsson - Löggiltur fasteignasali / s. 767-0000 / darri@fstorg.is.

KÍKTU Í HEIMSÓKN TIL MÍN Á FACEBOOK
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉR


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
10/07/202060.400.000 kr.41.000.000 kr.92.4 m2443.722 kr.
30/01/201728.000.000 kr.36.600.000 kr.92.4 m2396.103 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (48)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skeljatangi 3
Opið hús:23. júní kl 16:30-17:00
Skoða eignina Skeljatangi 3
Skeljatangi 3
270 Mosfellsbær
94.2 m2
Fjölbýlishús
413
848 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Kleppsvegur 44
Opið hús:24. júní kl 17:15-17:45
Skoða eignina Kleppsvegur 44
Kleppsvegur 44
105 Reykjavík
63 m2
Fjölbýlishús
211
919 þ.kr./m2
57.900.000 kr.
Skoða eignina Búðavegur 35
Skoða eignina Búðavegur 35
Búðavegur 35
750 Fáskrúðsfjörður
398.7 m2
Fjölbýlishús
4610
163 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Dvergaborgir 3
Skoða eignina Dvergaborgir 3
Dvergaborgir 3
112 Reykjavík
86 m2
Fjölbýlishús
312
924 þ.kr./m2
79.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin