** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Nýtt og glæsilegt 151,1 m2 endaraðhús á einni hæð með bílskúr í byggingu við Fannborgartanga 27 á Flúðum Birt stærð eignarinnar er 151,1 m2, þar af er íbúðarhluti 117,4 m2 og innbyggður bílskúr 33,7 m2. Eignin afhendist samkvæmt skilalýsingu seljanda. Eignin er laus til afhendingar í mars 2026.
Verð kr. 69.900.000,-
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.Skilalýsing er eftirfarandi:Utanhúss: Raðhús á einni hæð með bílskúr byggt úr forsteyptum einingum frá Steypustöðinni.
Útveggir Eru úr forsteyptum samlokueiningum og málaðir að utan.
Þak er hefðbundið sperruþak með aluzink.
Gluggar og
hurðir: Ál/tré gluggar með tvöföldu K-gleri, ál/tré inngangshurðar/svalahurðar, og koksgrá bílskúrshurð (Ral 7016).
Lóð er skilað þökulagðri og mulningur í bílastæðum. Hæðarkótar á lóð miðast við fokheldi.
Innanhúss: Gólf: Eru flotuð (fyrir utan sturtubotna) og máluð inní bilskúr.
Loft: Gipsloft er fullklárað í bílskúr. Í íbúðarhlutanum eru loft einangruð og með rakavarnalagi en óklædd.
Veggir: Að innan er veggur steyptur á milli bílskúrs og Íbúðar. Rafmagnsdósir og lagnaleiðir í þeim veggjum auk útveggja eru klárar og þeir veggir spartslaðir og grunnaðir. Aðrir innveggir verða ekki uppsettir.
Rafmagn: Inntak og rafmagnstafla uppsett og tengd. Rafmagn frágengið í bílskúr.
Lagnir: Frágangur neyslu og fráveitulagna er miðaður við samþykktar skipulagsteikningar. Inntak hita og neysluvatns klárt. Gólfhitakerfi tengt og frágengið. Neysluvatn lagt í golf samkvæmt teikningum. Hita-, rafmagns og vatnslagnir eru lagðir í gólfplötu og steypta innveggi samkvæmt teikningum. Húsið er hitað upp með hefðbundnu gólfhitakerfi og afhendist án þráðlausra hitastýringa, gólfhitakista hefur verið færð úr þvottahúsi yfir í bílskúr. Hámkarkshiti á heitu vatni er 60°C. Stofninntök neysluvatnslagna tengd og full frágengin. Pípur fyrir raf- og boðlagnir eru miðaðar við samþykktar skipulagsteikningar. Heimtaugar rafmagns og boðtauga skulu tengdar og frágengnar.
Eignin afhendist tilbúin til tréverks samkvæmt byggingarstig B2. Byggingargjöld og gatnagerðargjald eru greidd. Seljandi greiðir heimtaugagjöld fyrir rafmagn og hita, en kaupandi greiðir 0,3% skipulagsgjald sem er innheimt við endanlegt brunabótarmat. Kaupandi skal fá nýja byggingastjóra og meistara að verkinu við afhendingu og sér um úttektir eftir afhendingu eignar. Allar byggingarteikningar afhendast samþykktar frá sveitafélaginu til kaupanda. Kaupandi greiðir fyrir allar breytingar á teikningum sem hann kann að óska eftir.