** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Nýtt og glæsilegt fullbúið 151,1 m2 endaraðhús reist úr forsteyptum einingum á einni hæð með bílskúr við Fannborgartanga 23 á Flúðum. Birt stærð eignarinnar er 151,1 m2, þar af er íbúðarhluti 117,4 m2 og innbyggður bílskúr 33,7 m2. Eignin skilast fullbúinn samkvæmt byggingarstigi 7 ÍST 51:2001 (gamli staðalinn) byggingarstigi 4 skv nýja. Innréttingar frá HTH, heimilistæki frá AEG, Grohe hreinlætistæki, innihurðir frá Birgisson og gólfefni frá Húsasmiðjunni, Birgisson eða sambærilegt. Dúkloft í svefnherbergjum, gangi og stofu. Á lóðinni er gert ráð fyrir tveimur bílastæðum við hverja íbúð og sorpskýli fyrir 4 sorpílát. Lóð er skilað í hæð og með torfi, hellulagt er undir skyggni að framanverðu og mulningur í bílaplani. Sjá nánar í skilalýsingu hér fyrir neðan. Eignin er laus til afhendingar í júlí 2026.
Verð kr. 89.900.000,-Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.Skilalýsing er eftirfarandi:Utanhúss: Þriggja íbúða raðhús á einni hæð. Byggt úr forsteyptum einingum frá Steypustöðinni.
Útveggir eru klæddir forsteyptri veðurkápu að utanverðu með pússaðri áferð og máluð í hvítum lit.
Þak er hefbundið sperruþak með þakpappa og klætt með aluzink, þakkantur grár (Ral 7016) og þakrennur einnig. Þakrennur, niðurföll og þakkantur frágengin.
Lóð: Á lóðinni er gert ráð fyrir tveimur bílastæðum við hverja íbúð og sorpskýli fyrir 4 sorpílát. Lóð er skilað í hæð og með torfi, hellulagt er undir skyggni að framanverðu og mulningur í bílaplani.
Gluggar: Ál/tré gluggar með tvöföldu K-gleri og ál/tré inngangshurðar/svalahurðar í gráum lit (Ral 7016).
Innanhúss:
Eignin skilast fullbúinn samkvæmt byggingarstigi 7 ÍST 51:2001 (gamli staðalinn) byggingarstigi 4 skv nýja.Innréttingar frá HTH, Heimilistæki eru AEG, Grohe hreinlætistæki, innihurðir frá Birgisson og gólfefni frá Húsasmiðjunni, Birgisson eða sambærilegt. Dúkloft í svefnherbergjum, gangi og stofu. Gipsloft í bílskúr, baði, geymslu og þvottahúsi sparslað, grunnað og málað. Gólf eru steypt og með fljótandi harðparketi og flísum að hluta til.
Innveggir: Uppsettir samkvæmt teikningu, léttir innveggir klæddir með spónaplötum innra lag og gifsplötum ytra lag, sparstlaðir,grunnaðir og málaðir.
Rafmagn: Inntak og rafmagnstafla uppsett og tengd. Rafmagn dregið í, tenglar,rofar og innfelld ljós frágenginn.
Lagnir: Frágangur neyslu og fráveitulagna er miðaður við samþykktar skipulagsteikningar. Pípulagnir: Inntak hita og neysluvatns klárt. Gólfhitakerfi tengt og frágengið (ekki gólfhitastýring). Neysluvatn lagt í gólf og veggi samkvæmt teikningum. Hita-, rafmagns og vatnslagnir eru lagðir í gólfplötu og steypta innveggi samkvæmt teikningum. Húsið er hitað upp með hefðbundnu gólfhitakerfi. Stofninntök neysluvatnslagna tengd og full frágengin. Pípur fyrir raf- og boðlagnir eru miðaðar við samþykktar skipulagsteikningar. Heimtaugar rafmagns og boðtauga skulu tengdar og frágengnar.
Annað: Minniháttar breytingar hafa verið gerðar frá gildandi teikningum og á eftrir að skila inn reyndarteikningum fyrir þær breytingar. Byggingargjöld og gatnagerðargjald eru greidd. Seljandi greiðir heimtaugagjöld fyrir rafmagn og hita, en kaupandi greiðir 0,3% skipulagsgjald sem er innheimt við endanlegt brunabótarmat.