Kaupstaður fasteignasala ehf. kynnir tví/þrí/fjórbýli í 355, Snæfellsbær
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Kaupstaður fasteignasala kynnir fallega og velskipulagða íbúð á efrihæð í mikið endurnýjuðu húsi á góðum stað, stutt í alla þjónustu.
Fallegt útsýni til sjávar og fjalla.
Endurbætur sem voru gerðar á húsinu 2019 til 2021, skipt var um alla glugga og hurðar, það var klætt að utan með bárujárni, timbri og einangrað, þakið var allt tekið í gegn sem og þakkantur og allar rennur. Húsið var drenað og skólp / pípulagnir og raflagnir endurnýjaðar. Allir veggir og loft voru heilsparslaðir og málaðir. Gólfhiti settur á neðri hæð og á efri hæð voru settir rafmagnsofnar.
Rafmagnstöflur endurnýjaðar ein á hvora hæð,ljósleiðari settur í húsið, einnig voru settar nýjar heimtaugar fyrir hvora hæð og sístreymishitarar í húsið á hvora hæð.
Efri hæð skiptist í forstofu, þvottahús, hol, eldhús, stofu / borðstofu, baðherbergi og 3-4 svefnherbergi
Forstofa er flísalögð.
Eldhús er með parket a gólfi, með nýlegri innréttingu og tækjum, helluborð, háfur og bakarofn, tengi fyrir uppþvottavél. Góður borðkrókur við glugga.
Stofa / borðstofa er rúmgóð með glugga á tvo vegu.
Hol er með parket á gólfi og útgeng út á rúmgóðar svalir.
Baðherbergi er flísalagt með upphengdu wc, handlaug með skúffu, hár skápur, spegill á vegg og sturtuklefi.
Svefnherbergi 1 er með parket á gólfi
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi
Svefnherbergi 3 er með parket á gólfi
Svefnherbergi 4 er gert ráð fyrir samkv. teikningu við hliðin á eldhúsi. Væri auðvelt að stúka af en er í dag opið með stofu.
Geymsluloft er yfir hæðinni, aðgengi úr holi.
Þvottahús er flísalagt, rennihurð í holið, einnig hægt að ganga inn úr forstofu.
Stór og góður garður með steyptum kannti allan hringinn og staurar til staðar ef vilji er til að setja girðingu. Gott bílastæði við húsið.
Mjög vel staðsett hús þar sem stutt er í alla þjónustu s.s skóla, íþróttahús, sundlaug, veitingastaði og fl.
Í dag er húsið skipt í tvær einingar efri og nerði hæð, sem lítið mál er að sameina.
Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
---|---|---|---|---|---|
07/03/2018 | 23.150.000 kr. | 9.000.000 kr. | 239.6 m2 | 37.562 kr. | Nei |
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
355 | 122.8 | 29,9 | ||
355 | 124.6 | 30 | ||
360 | 130.5 | 31 |