Fasteignaleitin
Skráð 20. júlí 2025
Deila eign
Deila

Rofabær 45

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
90.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
64.900.000 kr.
Fermetraverð
720.311 kr./m2
Fasteignamat
61.000.000 kr.
Brunabótamat
46.750.000 kr.
HL
Hreiðar Levý Guðmundsson
löggiltur fasteignasali
Byggt 1967
Þvottahús
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2045281
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
3
Vatnslagnir
Endurnýjaðir að hluta
Raflagnir
Tafla endurnýjuð 2018. Raflagnir endurnýjaðar að hluta.
Frárennslislagnir
Endurnýjaðir að hluta
Gluggar / Gler
Endurnýjaðir að hluta
Þak
Járn á þaki endurnýjað árið 2017
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Lóð
0,96
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Betri stofan fasteignasala og Hreiðar Levý lögg. fasteignasali kynna fallega og vel skipulagða, 90,1fm, 3ja herbergja íbúð á 3ju og efstu hæð í húsi teiknuðu af Kjartani Sveinssyni að Rofabæ 45, 110 Reykjavík. Eignin hefur fengið afar gott viðhald á síðustu árum bæði að innan sem að utan þar sem ma. hefur verið skipt um járn á þaki, allir gluggar endurnýjaðir ásamt svalarhurðum, svalir endursteyptar og sett handrið með álprófílum og hertu gleri ofl. Í íbúðinni sjálfri hefur eldhús og baðherbergi verið endurnýjað, rafmagnstafla endurnýjuð, nýr myndavéladyrasími ofl. Þá hefur sameiginlegur inngarður fimm fjölbýlishúsa að Hraunbæ 176-198 og Rofabæ 43-47 verið uppgerður með endurnýjun gróðurs, leiktækja, spark- og körfubolta vallar. Hús- og lóðarfélag standa vel og eru í þjónustu hjá Eignarekstri sem sér um rekstur þeirra og umsjón. Sérmerkt bílastæði fylgir íbúðinni á sameiginlegri bílastæðalóð.

Bókið skoðun hjá Dagrúnu Davíðsdóttir löggiltum fasteignasala í síma 866-1763 eða á dagrun@betristofan.is og Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.is

Eignin skiptist í forstofu, endurnýjað eldhús með nýlegum tækjum, rúmgóð stofa með útgengi út á suðursvalir, herbergjagang með skápaplássi ásamt innbyggðum skáp með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Tvö rúmgóð svefnherbergi, hjónaherbergi með góðu skápaplássi, endurnýjað baðherbergi ásamt sérgeymslu á jarðhæð. Í sameign á jarðhæð er sameiginlegt þvottahús ásamt hjóla- og vagnageymslu. Sérmerkt bílastæði á sameiginlegu bílaplani.

Vinsæl og fjölskylduvænt staðsetning í rótgrónu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu svo sem í leik- og grunnskóla, matvöruverlsun, blómlegt íþróttastarf Fylkis og Árbæjarsundlaug. Þá eru útivistarparadísirnar Elliðaárdalur og Víðidalur í göngufjarlægð.

Eignin Rofabær 45 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 204-5281, birt stærð 90.1 fm, þar af er sérgeymsla á jarðhæð merkt 020107, skráð birtir 4,5fm

Fasteignamat fyrir árið 2026 skv. HMS er 67.550.000kr

Endurbætur á húsinu síðastliðin ár:
2017 - Þak yfirfarið og járn endurnýjað ásamt þakrennum. Farið var í sprunguviðgerðir á Norður- og vesturhlið hússins. Skipt um glugga og gler á norður- og suðurhlið (fyrir utan svalaglugga og gler ásamt svalahurðum). 
2018 - Skipt var um þak á húsinu, Gluggum skipt út á austur- og suðurhlið að undanskildum gluggum sem eru inni á svölum. Á norður og vestur hlið var múr lagaður og málað. Hurðum á ruslakompu og hjólageymslu var skipt út.
2018 - Sameiginlegt leik og útivistarsvæði tekið í gegn, endurnýjaður gróður og leiktæki.
2019 - Dyrasími endurnýjaður
2022 - Leiktæki á sameiginlegri lóð endurnýjuð.
2023 og 2024 - Suðurhlið hússins var klædd og skipt um glugga og svalahurðir. Svalir endursteyptar og sett handrið með álprófílum og hertu gleri. Múrviðgerðir á steypta hlutanum inn í svölunum. Múr lagaður og suðurhlið klædd með áli að undanskildum flötum inni á svölum. Svalahurðir endurnýjaðar ásamt stofuglugga sem eru inni á svölunum.

Stigagangur Rofabær 45:
2016 - Ný sameiginleg þvottavél í sameign.
2018 - Sameiginlegri rafmagnstöflu skipt út og settir inn nýjir dyrasímar.
2018 - Nýjir póstkassar

Íbúðin 3HH í Rofabæ 45:
2018 - Nýr dyrasími og rafmagnstafla endurnýjuð.
2019 - Baðherbergi endurnýjað, flísalagt (gólf og sturta), klæðning á álagsvegg, ný baðinnrétting, sturta og baðherbergistæki. Stór skápur við hlið baðherbergis settur upp fyrir þvottavél og þurrkara. Hiti lagður í gólf og heitavatns handklæðisofn settur upp.
2022 - Eldhús endurnýjað, ný innrétting og tæki, nýtt gólfefni (svartur korkur). Rafmagn lagt fyrir ný ljós og fyrir helluborð.

Nánari lýsing:
Forstofa: Upphengdir snagar. Flísar á gólfi.
Eldhús: Endurnýjað árið 2022. Innrétting með efri og neðri skápum, ofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél, innfeldur vaskur, spanhelluborð, aðstaða fyrir ísskáp í innréttingu ásamt borðkrókur. Nýlegar korkflísar á gólfi.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa með stórum glugga til suðurs og útgengi út á rúmgóðar suðursvalir.
Herbergjagangur: Tengir saman tvö herbergi og baðherbergi. Tvöfalldur innbyggður fataskápur ásamt nýlegum innbyggðum skáp með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergi I: Rúmgott með góðu skápaplássi.
Svefnherbergi II: Rúmgott barnaherbergi.
Baðherbergi: Endurnýjað árið 2019. Flísar á gólfi og í sturtu. Baðinnrétting með neðri skúffum með handlaug ofan á borði, skáp og spegli fyrir ofan skáp.
Geymsla: Sérgeymsla í sameign á jarðhæð, 4,5fm.


Sameign: Sameign öll hin snyrtilegasta. Sameiginlegt þvottahús ásamt hjóla- & vagnageymslu.
Garður: Einstaklega fallegur, skemmtilegur og vel hirtur sameiginlegur inngarður með nýlegum leiktækjum, sparkvelli með mörkum og körfum. Gróður einnig vel hirtur og hefur verið að hluta til endurnýjaður á síðustu árum.
Bílastæði: Sérmerkt bílastæði á sameiginlegu bílaplani.

Góð og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð í húsi sem hefur fengið gott viðhald hin undanfarin ár með fallegum inngarði í vinsælu og fjölskylduvænu hverfi í Árbænum.

Nánari upplýsingar veitir Dagrún Davíðsdóttir löggiltum fasteignasala í síma 866-1763 eða á dagrun@betristofan.is og Hreiðar Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
27/08/201520.100.000 kr.22.500.000 kr.90.1 m2249.722 kr.
29/08/200614.230.000 kr.16.700.000 kr.90.1 m2185.349 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hraunbær 118
Opið hús:22. júlí kl 16:30-17:00
Hraunbær_118-31.jpg
Skoða eignina Hraunbær 118
Hraunbær 118
110 Reykjavík
97.7 m2
Fjölbýlishús
413
686 þ.kr./m2
67.000.000 kr.
Skoða eignina Hraunbær 118
Opið hús:22. júlí kl 16:30-17:00
Hraunbær_118-31.jpg
Skoða eignina Hraunbær 118
Hraunbær 118
110 Reykjavík
97.7 m2
Fjölbýlishús
413
686 þ.kr./m2
67.000.000 kr.
Skoða eignina Hraunbær 109
Skoða eignina Hraunbær 109
Hraunbær 109
110 Reykjavík
75.6 m2
Fjölbýlishús
312
819 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Skoða eignina Rofabær 31
Skoða eignina Rofabær 31
Rofabær 31
110 Reykjavík
89.4 m2
Fjölbýlishús
312
726 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin