Fasteignaleitin
Opið hús:12. júlí kl 14:00-14:30
Skráð 7. júlí 2025
Deila eign
Deila

Sogavegur 107

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
65.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
63.900.000 kr.
Fermetraverð
975.573 kr./m2
Fasteignamat
54.600.000 kr.
Brunabótamat
38.850.000 kr.
Mynd af Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1974
Garður
Útsýni
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2035463
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Ekki vitað
Þak
Endurnýjað að hluta
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Ytra byrði (húsveggir á vestur- og norðurhlið) og svalir þarfnast viðhalds. Ekkert mánaðarlegt hússjóðsgjald er innheimt um þessar mundir og engar framkvæmdir hafa verið samþykktar á húsfundi.
RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Falleg og björt þriggja herbergja 65,5 fm. íbúð á efstu hæð með góðu útsýni á eftirsóttum stað við Sogaveg 107, 108 Reykjavík. Íbúðin skiptist í forstofu, opið hol, eldhús, borðstofu og stofu með útgengt út á vestur svalir, tvö svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Sameiginleg (úthlutuð) stæði eru fyrir framan hús.  Garður fyrir framan hús er einnig sameiginlegur.  Ath. Forstofa íbúðar (um 3 fm.) og geymsla í sameign (um 5 fm.) er ekki í uppgefnum fm.

Björt og vel skipulögð eign á fjölskylduvænum stað þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, íþróttasvæði Víkings, sem og alla helstu þjónustu og verslanir. 


Nánari upplýsingar veitir Guðrún Lilja Tryggvadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1231, gudrunlilja@remax.is

KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

Nánari lýsing: 
Íbúðin er á efstu hæð og við anddyri íbúðar er stigapallur með fatahengi sem er ekki inní birtum fm. eignarinnar, en gott nýtanlegt rými.  Nýleg brunavarnarhurð er inní íbúð.   Gengið er inn í opið og bjart rými með eldhús, borðstofu og stofu.  Eldhús er nýlega endurnýjað, með fallegum hvítum innréttingum og góðu skápaplássi, FIBO plata á vegg og ofn í vinnuhæð.  Stofa og borðstofa er í sama rými, stórir og bjartir gluggar og útgengt er út á svalir til vesturs.
Svefnherbergin eru tvö, rúmgóð og björt með parketi á gólfi.  Á hægri hönd við inngang íbúðar er baðherbergi með baðkari og sturtu, ágætri vaskinnréttingu með spegli, handklæðaofn og tengi er fyrir þvottavél og þurrkara. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi og gólf flísalagt. 
Geymsla um 5 fm. er staðsett í sameign, ekki í birtum fm. eignarinnar.  Í sameign á jarðhæð er jafnframt sameiginlegt þvottahús.
Bílastæði eru sameiginleg fyrir framan hús en venja að hver leggur í sitt úthlutaða stæði.   Garður fyrir framan hús er sameiginlegur en fyrir aftan hús er stórt grænt og fallegt útivistarsvæði, hluti af skipulagi hverfisins.

Árin 2022-2023 var eldhús endurnýjað og sett ný loftaklæðning í alrými. Skipt var um innihurðir (fyrir utan baðherbergishurð), nýtt parket á íbúð og listar (fyrir utan baðherbergi). Ofnar voru yfirfarnir og skipt um hitastilli á þeim. Skipt var um rafmagnstengla og rofa að mestu. Einnig settir nýjir nettenglar fyrir framan sjónvarp og í barnaherbergi.  2019 var húsið sprunguviðgert að hluta og málað. Þak einnig málað og þakrennur endurnýjaðar. Þak var endurnýjað að hluta (járn og pappi) 2022-2023.  Árið 2021 var stigagangur málaður og skipt um teppi. 
Nýlegur dyrasími, settur í febrúar á þessu ári.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.   2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.  3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.   4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
30/03/202240.150.000 kr.54.000.000 kr.65.5 m2824.427 kr.
26/07/201727.550.000 kr.29.600.000 kr.65.5 m2451.908 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hörðaland 8
Skoða eignina Hörðaland 8
Hörðaland 8
108 Reykjavík
61.8 m2
Fjölbýlishús
211
1083 þ.kr./m2
66.900.000 kr.
Skoða eignina Nýlendugata 20
Skoða eignina Nýlendugata 20
Nýlendugata 20
101 Reykjavík
77.6 m2
Fjölbýlishús
312
836 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Borgartún 24 - íbúð 305
Borgartún 24 - íbúð 305
105 Reykjavík
57.1 m2
Fjölbýlishús
211
1084 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Skoða eignina Heklureitur - íbúð 302
Opið hús:09. júlí kl 17:00-17:30
Heklureitur - íbúð 302
105 Reykjavík
53.2 m2
Fjölbýlishús
211
1182 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin