Fasteignamiðlun kynnir eignina Hlíðarvegur 13, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0384 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Hlíðarvegur 13 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0384, birt stærð 213.3 fm.
Um er að ræða einbýlishús á tveimur hæðum með stórum bílskúr og frábæru útsýni. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, stofu, borðstofu, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi og fokheldri neðri hæð. Eignin hefur verið endurnýjuð að hluta eins og baðherbergi, forstofa, vatnslagnir og frárennsli. Einnig var þak málað og yfirfarið og timburpallur byggður framan við eignina þar sem áður var inngangur eignarinnar. Undir palli er köld geymsla sem gengið er inn í á neðri hæð. Neðri hæð eignarinnar hefur verið gerð fokheld og býður upp á marga möguleika.
Eldri hluti eignarinnar er á tveimur hæðum en byggt var við húsið árið 1979. Viðbyggingin samanstendur af stofu, forstofu og baðherbergi.
Forstofa: hefur verið endurnýjuð með flísum á gólfi og ágætis skápaplássi. Hiti er í gólfi. Forstofa er hluti af viðbyggingu. Eldhús: er með ljósri innréttingu með góðu skápaplássi og dökkri borðplötu. Parket er á gólfi. Stofa: er mjög stór með góðu gluggarými og útgang út í garð. Parket er á gólfi. Stofa er hluti af viðbyggingu. Borðstofa: er rúmgóð með góðu gluggaplássi og útsýni yfir fjallagarðinn. Svefnherbergi: eru tvö á efri hæð misstór með parket á gólfi. Baðherbergi: hefur verið endurnýjað með flísum á gólfi, walk in sturtu, vask, innréttingu, hanklæðaofn og upphengdu salerni. Hiti er í gólfi og vifta í útvegg. Þvottahús: er á neðri hæð með steyptu máluðu gólfi og vask. Opnanlegur gluggi er í þvottahúsi. Neðri hæð: hefur verið gerð fokheld og því margir möguleikar í uppbyggingu. Mikið gluggapláss er á neðri hæð. Bílskúr: er 34,6m2 með steyptu gólfi, rafdrifinni bílskúrshurð og inngangshurð. Stórir gluggar eru á suðurhlið. Garður: lóðin nær upp að Hólavegi (næstu götu að ofan) og er grasilögð. Timburpallur er í skjóli sunnan við bílskúr.
Ástand hússins er ágætt miðað við aldur þess en nauðsynlegt að fara í eitthvert viðhald. Einu sinni hefur lekið inn í kjallara hússins þegar aðveitulögn veitna bilaði og mögulega ráðlegt að koma fyrir drenlögn ofan við húsið. Leka hefur þó ekki gætt síðan veitulögn bilaði. Eldri hluti hússins hefur verið gerður upp frá upphaflegu útliti eins og sést við skoðun. Eru þessar endurbætur misgamlar en nýjast er innrétting í eldhúsi. Skipt hefur verið um flest alla glugga í elsta hluta hússins frá. Þá er líklegt að bæta þurfi samskeyti á mörkum eldrahúss og nýbyggingar en þar hefur einu sinni lekið þegar mikil snjósöfnun var á þaki viðbyggingar. Eftir þann leka var kverkjárn breikkað og hefur ekki lekið síðan. Mikilvægt er þó að fylgjast með þakinu ef snjóalög eru mikil.
Fasteignamiðlun kynnir eignina Hlíðarvegur 13, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0384 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Hlíðarvegur 13 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0384, birt stærð 213.3 fm.
Um er að ræða einbýlishús á tveimur hæðum með stórum bílskúr og frábæru útsýni. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, stofu, borðstofu, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi og fokheldri neðri hæð. Eignin hefur verið endurnýjuð að hluta eins og baðherbergi, forstofa, vatnslagnir og frárennsli. Einnig var þak málað og yfirfarið og timburpallur byggður framan við eignina þar sem áður var inngangur eignarinnar. Undir palli er köld geymsla sem gengið er inn í á neðri hæð. Neðri hæð eignarinnar hefur verið gerð fokheld og býður upp á marga möguleika.
Eldri hluti eignarinnar er á tveimur hæðum en byggt var við húsið árið 1979. Viðbyggingin samanstendur af stofu, forstofu og baðherbergi.
Forstofa: hefur verið endurnýjuð með flísum á gólfi og ágætis skápaplássi. Hiti er í gólfi. Forstofa er hluti af viðbyggingu. Eldhús: er með ljósri innréttingu með góðu skápaplássi og dökkri borðplötu. Parket er á gólfi. Stofa: er mjög stór með góðu gluggarými og útgang út í garð. Parket er á gólfi. Stofa er hluti af viðbyggingu. Borðstofa: er rúmgóð með góðu gluggaplássi og útsýni yfir fjallagarðinn. Svefnherbergi: eru tvö á efri hæð misstór með parket á gólfi. Baðherbergi: hefur verið endurnýjað með flísum á gólfi, walk in sturtu, vask, innréttingu, hanklæðaofn og upphengdu salerni. Hiti er í gólfi og vifta í útvegg. Þvottahús: er á neðri hæð með steyptu máluðu gólfi og vask. Opnanlegur gluggi er í þvottahúsi. Neðri hæð: hefur verið gerð fokheld og því margir möguleikar í uppbyggingu. Mikið gluggapláss er á neðri hæð. Bílskúr: er 34,6m2 með steyptu gólfi, rafdrifinni bílskúrshurð og inngangshurð. Stórir gluggar eru á suðurhlið. Garður: lóðin nær upp að Hólavegi (næstu götu að ofan) og er grasilögð. Timburpallur er í skjóli sunnan við bílskúr.
Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
05/05/2021
23.950.000 kr.
21.500.000 kr.
213.3 m2
100.796 kr.
Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.