DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 25. mars 2026

Barmahlíð 26

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
117.7 m2
5 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
99.500.000 kr.
Fermetraverð
845.370 kr./m2
Fasteignamat
92.000.000 kr.
Brunabótamat
66.400.000 kr.
Mynd af Þórey Ólafsdóttir
Þórey Ólafsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2030082
Landnúmer
107029
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
4
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
sjá lýsingu
Raflagnir
sjá lýsingu
Frárennslislagnir
sjá lýsingu
Gluggar / Gler
Sjá lýsingu
Þak
sjá lýsingu
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suðursvalir
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Húsfélagið Barmahlíð 26 -> engar samþykktar framkvæmdir en rætt hefur verið um að teppaleggja stiga eins og segir í yfirlýsingu húsfélags en þá á að vera til fyrir þeirri framkvæmd í sjóð húsfélagsins. Samþykkt að lækka húsgjöldin um helming eins og segir í fundagerð.
Húsfélagið Barmahlíð 26 - 28 -> Heildarviðgerð á ytra byrði hússins alls (Barmahlíðar 26 og 28) hófust árið 2025 og standa enn. Um er að ræða múrviðgerðir, steiningu, viðgerð/endurnýjun á tréverki (gluggar/svalahurðir) og málningu á gluggum. Samhliða munu íbúar í Barmahlíð 28 skipta um þak sín megin á sinn kostnað og laga þakkant og svalir á 2. hæð. Íbúar í risi munu jafnframt setja neyðarútgang/svalir á sínar eignir á sinn kostnað. Áæltaður kostnaður vegna samþykktra framkvæmda er kr 4.866.233 fyrir múrviðgerðir og gluggaskipti sem selejndur greiða. Við það bætast gluggaviðgerðir sem verða unnar samkvæmt tímagjaldi og gluggamálun sem eftir á að leita tilboða í sem seljendur greiða einnig fyrir en þó eigi meira en 10.000.000 kr samtals fyrir þessar samþykktu framkvæmdir. Verði þessum samþykktu framkvæmdum ekki lokið fyrir afsal verður veittur afsláttur af lokagreiðslu sem því nemur.
Gallar
Sjá ástandsyfirlýsingu selenda sem er hluti af söluyfirliti þessu.
LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir kynna í einkasölu einstaklega bjarta og vel skipulagða 4-5 herbergja efri sérhæð við Barmahlíð 26 í Reykjavík. Eignin er staðsett í rótgrónu og vinsælu hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu. Um er að ræða sérlega glæsilegt hús teiknað af Sigvalda Thordarsyni og Gísla Halldórssyni með fallegum og vönduðum arkitektúr. Bjartar og rúmgóðar samliggjandi stofur með frönskum gluggum, suðursvalir með steyptu blómakari og skjólsæll suðurgarður. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð að innan, þar á meðal með vönduðu fiskibeinaparketi úr eik sem gefur íbúðinni hlýlegt og vandað yfirbragð. Utanhússframkvæmdir eru í fullum gangi – greiddar af seljendum.

Íbúðin er skráð 117,7 fm og skiptist í tvær rúmgóðar samliggjandi stofur, tvö svefnherbergi, sjónvarpshol (mögulegt þriðja herbergi), eldhús og baðherbergi. 

Allar frekari upplýsingar í síma 663 2300 eða thorey@fastlind.is

Nánari lýsing:
 
Forstofa með fatahengi og parketi á gólfi.
Tvær rúmgóðar og bjartar samliggjandi stofur með parketi á gólfi og útgengi á suðursvalir, einkar falleg steypt blómakar á svölum sem er hluti af upprunalegri hönnun hússins.
Eldhús með hvítri innréttingu, viðarborðplötu og björtum borðkrók, parket á gólfi.
Hjónaherbergi með innbyggðum fataskáp, parketi á gólfi og útgengi á svalir.
Barnaherbergi með innbyggðum fataskáp, parket á gólfi.
Sjónvarpshol (mögulegt þriðja svefnherbergi), parket á gólfi.
Baðherbergi með glugga, flísalagt að hluta með upphengdu salerni, vaskinnréttingu og baðkari.
Sérgeymsla í kjallara (4,4 fm), innaf þvottahúsi.
Sameiginlegt þvottahús í kjallara með glugga, nýlega endurbætt.

Suðurgarður, skjólsæll og sólríkur, einstaklega fallega hannaður og gróinn með fallegum blómabeðum sem gefa garðinum hlýlegt yfirbragð. Garðurinn er sannkallaður sælureitur yfir sumartímann. Þar er einnig rúmgóður skúr sem nýtist vel til geymslu á hjólum, garðáhöldum eða öðru tilfallandi. Samkvæmt þinglýstri skiptayfirlýsingu fylgir bílskúrsréttur eigninni, sameigilegur réttur íbúða 0101 og 0201.

Eignin hefur verið mikið endurnýjuð að innan á undanförnum árum. Gólf hafa verið flotuð og lagt hefur verið vandað eikar fiskibeinaparket á alla íbúðina ásamt nýjum gólflistum. Íbúðin hefur verið máluð í áföngum og loftlistar endurbættir í upprunalegum stíl sem gefur íbúðinni einstakt yfirbragð. Eldhús og herbergi hafa verið uppfærð. Rafmagn hefur verið endurbætt að hluta með fjölgun tengla og lagfæringum á lögnum. Gluggar hafa verið yfirfarnir, gler endurnýjað að hluta, gluggar í eldhúsi, hjónaherbergi, barnaherbergi og sjónvarpsholi hafa auk þess verið lagfærðir og lakkaði

Barmahlíð 26 hefur fengið gott og reglulegt viðhald á undanförnum árum og hefur m.a. þak verið endurnýjað og útitröppur endurbættar. Garðurinn er einstaklega fallegur, mjög gróinn, skjólsæll og vel hirtur. Stétt meðfram vesturhlið hússins hefur verið endurgerð, en lóðin hefur að öðru leyti haldið sínum upprunalega og sjarmerandi svip. Nú standa yfir umfangsmiklar utanhússframkvæmdir á húsinu, þar á meðal múrviðgerðir, steining og viðgerðir á gluggum, auk viðhalds á þaki á hinum hluta hússins.Framkvæmdirnar miða að því að viðhalda og styrkja upprunalegt útlit hússins en valinn hefur verið steiningarlitur sem fellur vel að upprunalegri ásýnd þess. Seljendur greiða fyrir samþykktar yfirstandandi framkvæmdir.

Húsgjöld eignar í húsfélagið Barmahlíð 26 er kr 17.050 á mánuði en þá er innifalinn allur almennur rekstur, allur hiti og rafmagn í sameign, húsgjöld lækka í kr 13.350 á mánuði frá maí 2026. Húsgjöld eignar í húsfélagið Barmahlíð 26-28 eru kr 8.085 en þá er innilfalinn allur almennur rekstur og framkvæmdasjóður.

Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða gegnum thorey@fastlind.is
 

Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
01/08/201742.400.000 kr.57.000.000 kr.117.7 m2484.282 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (38)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Básahraun 25
Bílskúr
Skoða eignina Básahraun 25
Básahraun 25
815 Þorlákshöfn
189.2 m2
Einbýlishús
514
508 þ.kr./m2
96.200.000 kr.
Skoða eignina Gæfutjörn 6
Bílastæði
Opið hús:09. apríl kl 17:00-17:30
Skoða eignina Gæfutjörn 6
Gæfutjörn 6
113 Reykjavík
56.2 m2
Fjölbýlishús
211
1130 þ.kr./m2
63.500.000 kr.
Skoða eignina Lágseyla 12
Bílskúr
Skoða eignina Lágseyla 12
Lágseyla 12
260 Reykjanesbær
228.3 m2
Einbýlishús
524
492 þ.kr./m2
112.300.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Nýja Torrevieja
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Nýja Torrevieja
Spánn - Costa Blanca
110 m2
Fjölbýlishús
322
389 þ.kr./m2
42.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin