Fasteignaleitin
Skráð 21. okt. 2025
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Nýja Torrevieja

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
110 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
39.700.000 kr.
Fermetraverð
360.909 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
101191025
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Svalir og möguleiki á þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FLOTTAR ÍBÚÐIR Á GÓÐU VERÐI*- * VANDAÐUR HÚSGAGNAPAKKI OG RAFMAGNSTÆKI FYLGIR*

Nýjar vel skipulagðar flottar íbúðir á góðum stað í nýja Torrevieja hverfinu, sem er spennandi framtíðarsvæði á Costa Blanca. Hægt er að velja um jarðhæð með stórri verönd, mið hæðir með stórum svölum eða penthouse með stórum svölum og sér þaksvölum. Flottur sundlaugargarðurog fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast góða íbúð á frábæru verði. Aðeins um 30 mín akstur suður frá Alicante.
Glæsilegar íbúðir með góðu alrými, tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Sérbílastæði í bílakjallara og geymsla fylgir.
Stutt er í alla helstu þjónustu, verslunarmiðstöðina Habaneras, úrval veitingastaða, fallegar strendur og ótal góða golfvelli.
Raftæki og vandaður húsgangapakki fylgir öllum íbúðum, þannig að hægt er að mæta bara á staðinn og byrja að njóta frá fyrsta degi.

Allar upplýsingar gefa
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 00354 893 2495. adalheidur@spanareignir.is,
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali,  GSM 0034 615 112 869. berta@spanareignir.is
Sennilega ein bestu kaupin á svæðinu í dag.


Nánari lýsing:
Rúmgóð stofa og borðstofa í opnu rými, vel tengt eldhúsi.
Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi. 
Sérlega vandaðar og fallegar íbúðir.

Mikið innifalið
Stæði í bílakjallara og geymsla
Sundlaugargarður, líkamsræk.
Padel og Petanca
BBQ svæði
Leiksvæði fyrir börnin
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun
Fjarstýrðar rafmagnsgardínur
Innbyggð lýsing
Húsgögn og heimilistæki fylgja, þmt. kaffivél, brauðrist og hárþurrka.
Sem sagt, allt sem þarf til að flytja inn og byrja að njóta frá fyrsta degi.

Alicante flugvöllur er í ca. 30 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 10 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Stutt er í dýragarðinn í Elche.

Verð miðað við gengi 1Evra=145ISK:
Íbúð með tveimur svefnherb. + tveimur baðh. Verð frá 274.000 Evrum (ISK 39.700.000) + 10%skattur og ca. 3% kostnaður við kaupin.
Íbúðirnar afhendast tilbúnar í mars - júní 2027.
Þessar íbúðir eru að seljast mjög vel. 
Stærð:
Íbúð 81fm
Svalir 29 fm.
Samtals 110 sérafnotafm.
Íbúðir á jarðhæð eru með stærri verönd, íbúðir á efstu hæði eru auk þess með stórum einkaþaksvölum.

Meira um Nýja Torrevieja hverfið:
Frábær staðsetning við náttúrulegu saltvötnin í Torrevieja. Heilsusamlegt loftslag og góð tenging við helstu samgönguleiðir, N332 strandveginn og A-7 hraðbrautina. Ca. 40 mín akstur í suður frá Alicante flugvellinum. 
Í næsta nágrenni er fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða, Habaneras verslunarmiðstöðin, stóra Carrefour verslunin, stærsti götumarkaðurinn í Torrevieja (á föstudögum), ráðstefnu- og tónleikahöll og alþjóðlega einkasjúkrahúsið Quiron. Gott aðgengi að íþróttasvæðum, skólum og stutt á ströndina. Við uppbyggingu á hverfinu er mikil áhersla lögð á fallegt og afslappað Miðjarðarhafsumhverfi.
Lögð er áhersla á sambland náttúru og bæjarstemmingu, fyrir þá sem velja þægilegan lífsstíl og heilsusamlegt líferni.
Fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, iðandi mannlíf Torrevieja með skemmtilegu "promenade" meðfram ströndinni og við bátahöfnina.
Í Nýja Torrevieja hverfinu finnur fólk nánast allt sem er á óskalistanum þegar velja á íbúð í Spánarsólinni.


SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með hagstæðu láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, sér garður, svalir, air con, sameiginlegur sundlaugargarður, bílastæði, geymsla, þaksvalir,
Svæði: Costa Blanca, Torrevieja,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
101191025
Fasteignanúmer
101191025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Los Alcazares
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Los Alcazares
Spánn - Costa Blanca
78 m2
Fjölbýlishús
322
529 þ.kr./m2
41.300.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Dona Pepa
SPÁNAREIGNIR - Dona Pepa
Spánn - Costa Blanca
79 m2
Hæð
322
504 þ.kr./m2
39.800.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Punta Prima
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Punta Prima
Spánn - Costa Blanca
92 m2
Fjölbýlishús
322
447 þ.kr./m2
41.100.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Los Altos
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Los Altos
Spánn - Costa Blanca
75 m2
Fjölbýlishús
322
529 þ.kr./m2
39.700.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin