** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Nýtt og glæsilegt 130 m2 heilsárshús/sumarhús sem stendur á 5.836,5 m2 eignarlóð við Hafravatnsveg 50, í útjaðri byggðar rétt við Hafravatn, 271 Mosfellsbæ. Frábær staðsetning. Svæðið verður með læstu símahliði við afleggjara frá Hafravatnsvegi og er í aðeins 10 mín akstri frá Höfuðborgarsvæðinu. Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, geymslu/inntaksrými, forstofu, eldhús, stofu og borðstofu. Mikil lofthæð, innbyggð lýsing og stórir gólfsíðir gluggar. Húsið skilast fullbúið að utan og innan með grófjafnaðri lóð ásamt bílastæði í janúar 2027. Húsið er með yfirbyggðu anddyri og yfirbyggðri 11 m2 verönd til suðurs, gólfsíðir útsýnisgluggar og rennihurð út á verönd. Smelltu hér til að fá söluyfirlit sentNánari lýsing:Forstofa er með parketi á gólfi.
Eldhús, stofa og borðstofa er í björtu opnu rými með góðri lofthæð og parketi á gólfi. Í eldhúsi er falleg innrétting með eyju. Quartz steinn á borðum. Í innréttingu er niðurfelldur vaskur, innbyggð uppþvottavél, ofn og helluborð með innbyggðum gufugleypi. Gert er ráð fyrir innbyggðum ísskáp í innréttingu. Úr rýminu er rennihurð út á
lóð í suðvesturátt.
Gangur er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi 1 er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi 3 (Hjónaherbergi) er með parketi á gólfi. Við hlið hjónaherbergis er
baðherbergi.
Baðherbergi 1 er flísalagt í hólf og gólf með innréttingu, sturtu, vegghengdu salerni og handklæðaofni. Tengi fyrir þvottavél er á baðherbergi. Gluggi er á baðherberginu.
Baðherbergi 2 er flísalagt í hólf og gólf með innréttingu, sturtu, vegghengdu salerni og handklæðaofni. Gluggi er á baðherberginu.
Geymsla/inntök er við hlið inngangs í húsið með flísum á gólfi.
Verð kr. 139.500.000,-Skilalýsing:Utanhúss: Fullbúið frístundahús á einni hæð byggt úr timbri á steypta plötu.
Útveggir eru klæddir með timburklæðningu.
Þak er hefðbundið með soðnum þakpappa, raflagnir er í þakkanti.
Gluggar: Ál/tré gluggar með þreföldu gleri, ál/tré inngangshurðar og svalahurðir úr áli/tré.
Lóð og bílastæðum er skilað grófjafnað með þjappaðri möl.
Innanhúss: Eignin skilast fullbúin án fataskápa.
Heitt vatn: Húsið er tengt hitaveitu og hitað upp með gólfhitakerfi.
Kalt vatn: Aðgangur að sameiginlegri borholu.
Fráveita: Rotþró/setlögn
Ljósleiðari: Tilbúinn til tengingar í rafmagnstöflu.
Ídráttarrör: Til staðar fyrir rafmagn og heitan pott.
Símahlið: Uppsetning í maí 2027.