DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 27. nóv. 2026

Dagverðarnes 84

SumarhúsVesturland/Borgarnes-311
125 m2
Verð
Tilboð
Fasteignamat
75.300.000 kr.
Mynd af Glódís Helgadóttir
Glódís Helgadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2002
Pallur
Heitur pottur
Sturtuklefi
Fasteignanúmer
2261987
Landnúmer
190011
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Gallar
Engir gallar sem stm Hraunhamars er kunnugt um.
Hraunhamar fasteignasala kynnir. Glæsilegt heilsárshús. Dagverðarnes 84, Skorradalur, 311 Borgarbyggð, nánar tiltekið sumarhús merkt 01-01, fastanúmer 226-1987 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Dagverðarnes 84 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 226-1987, birt stærð 125.0 fm. Að auki er um 11,5 fm. rými í kjallara sem er ekki í skráðum fermetrum og er húsið því um 136 fm. 
Lóðin er 10.317 fm. Eignarland mjög mikið gróin með fallegum trjám.

Eigning skiptist eftirfarandi:
Forstofa með skápum, flísar á gólfi
Hjónaherbergi með skápum, parket á gólfi
2 svefnherbergi með skápum, parket á gólfi
Baðherbergi með eikarinnréttingu, stór walk in sturta, flísar á gólfi og veggjum. Útgengið út á pallinn frá baðherbergi
Hol/gangur með skápum, flísar á gólfi
Eldhús, borðstofa og stofa í alrými. Eikarinnrétting í eldhúsi með eyju og vönduðum tækjum, útgengið er út á pallinn frá stofu. Parket á gólfum. Granít steinn á eldhúsbekkjum.

Efri hæð er mjög rúmgóð og er nýtt sem fjölskyldurými en getur verið nýtt sem fjórða svefnherbergið.
Kjallari er steyptur um 11,5 fm geymsla með hitakútum, rafmagns- og vatnsinntaki, gólfhitastýringum og innréttingu með vask.  Hitablásari fyrir skó. Ný digital rafmagnsstýring á gólfhita með þráðlausum stillum fyrir hvert rými (2025).Ný hitagrind fyrir stýringu á gólfhita 2025.
Mjög stór pallur um 225 fm. er við húsið og heitur pottur á palllinum. 
Undir palli við hús eru tvö geymslurými annað er stórt geymslurými fyrir grill og útihúsgögn og hitt er fyrir áhöld td stiga, hjólbörur og annað.

Rut Káradóttir hannaði húsið að innan.

Allar innréttingar eru sérsmíðaðar af Smíðaþjónustunni. Hurðar og innréttingar eru úr vandaðri beinstrífaðri eik. Ljósastýringar hannaðar af Lúmex og öll ljós frá Lúmex.
Veggur við arinn og útihurð eru klæddir gegnheillu eikarparketi.
Parket á gólfi og hluta af veggjum í herbergjum er gegnheilt eykarparket. Mustang steinn á gólfum og á hillu kringum arinn, á baðherbergis borði og kringum eldavél.
Öryggishlið við þjóðveg inn á svæðið sem opnast með fjarstýringu eða símhringingu.
Frábært útsýni yfir Skorradalinn og vatnið

Eigninni fylgir 1/12 hlutur úr lóðinni Dagverðanes 74 sem er kvaðabundinn þannig að ekki er heimilt að byggja sumarhús á lóðinni. Lóðina má nýta sem sameiginlegt útivistarsvæði fyrir eigendur sumarhúsa á svæði nr. 5 í Dagverðanesi. Þetta þýðir að húsið er langt frá öllum öðrum húsum og í botni á götunni og það verður ekki byggt nær húsinu en það er í dag.
Skipti á íbúð eða íbúðum á höfðuborgarsvæðinu koma til greina. 

Þetta er glæsileg eign í Skorradalnum sem vert er að skoða frekar !


Nánari uppl. gefur Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is og
Glódís Helgadóttir lgf. s. 659-0510 glodis@hraunhamar.is


Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
 
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í 44 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (33)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hraunbrekkur 28
Heitur pottur
Hraunbrekkur 28 copy.jpg
Skoða eignina Hraunbrekkur 28
Hraunbrekkur 28
320 Reykholt í Borgarfirði
128,8 m2
Sumarhús
44
698 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Jötnagarðsás 10
Heitur pottur
Jötnagarðsás 10
311 Borgarnes
130 m2
Sumarhús
312
538 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Dvergholt 15
Á einni hæð
Skoða eignina Dvergholt 15
Dvergholt 15
311 Borgarnes
98,5 m2
Sumarhús
413
608 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Stekkar - Hádegishóll 3
Á einni hæð
Stekkar - Hádegishóll 3
311 Borgarnes
77,2 m2
Sumarhús
413
595 þ.kr./m2
45.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin