ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina Ásabraut 16, fallega 88,3 fm 3ja herbergja íbúð á 1. hæð í tveggja hæða fjölbýli byggt árið 2005. Byggingaraðili: Grindin ehf. í Grindavík. Tvö svefnherbergi, sjónvarpshol / stofa, gott anddyri, þvottahús, geymslur.
*** Athygli er vakin á því að ekki er boðið upp á almenna fjármögnun á eignir í landi Grindavíkur og því eingöngu um staðgreiðslu að ræða
Nánari lýsing:Aðkoma malbikað bílaplan, hellulagðar stéttir meðfram bílaplani, steypt stétt að inngangi.
Inngangur sérinngangur inn í íbúðina er inn af yfirbyggðri stétt.
Forstofa með flísum á gólfi, eikarfataskápur.
Svefnherbergi tvö góð svefnherbergi, fataskápar í báðum og parkett á gólfum.
Eldhús með eikarinnréttingu, ofni, keramik helluborði og háf, parket gólfi. Stór og bjartur borðkrókur við glugga.
Stofa með parketi, útgengt út verönd sem snýr í vestur. Útsýni út á varnargarða.
Baðherbergi með eikarinnréttingu, vaskur kemur ofan á borð í innréttingu, speglar á hurðum efri skápa, baðkar með sturtuaðstöðu, upphengt salerni, flísar á gólfi og veggjum. Handklæðaofn. Lofttúða.
Þvottahús / geymsla flísar á gólfi, innrétting og vaskur og geymsluhillur
Geymsla Sér geymsla fyrir íbúðina í sameign. Sameiginleg hjóla-/kerrugeymsla á jarðhæð.
Gólfefni: Flísar á forstofu, gangi, baðherbergi, og þvottahúsi/geymslu. Parket á herbergjum eldhúsi og stofu.
Upplýsingar um eignina veitir:Páll Þorbjörnsson lgf á netfanginu pall@allt.is eða í síma 560-5501
Sigurjón Rúnarsson lgf netfanginu sigurjon@allt.is í síma 560-5524
ATH myndir eru af sambærilegri eign.. Athygli er vakin á því að ekki er boðið upp á almenna fjármögnun á eignir í landi Grindavíkur og því eingöngu um staðgreiðslu að ræðaVertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.