DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 28. júlí 2022

SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
176 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
145.000.000 kr.
Fermetraverð
823.864 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.spanareignir.isEignalisti
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
945240724
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
Nýlegt
Raflagnir
nýlegt
Frárennslislagnir
Nýlegt
Gluggar / Gler
Nýlegt
Þak
nýlegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Stórar verandir með glæsilegri aðstöðu
Upphitun
Kæling/hiti/gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG LÚXUSVILLA Á FRÁBÆRUM GOLFVELLI*-*VÖNDUÐ HÚSGÖGN OG HÚSBÚNAÐUR FYLGIR*

Glæsilegt og vel hannað nýlegt  156 fm. einbýlishús á einni hæð ásamt ca. 20 fm. gestahúsi/sérstæðu vinnurými eða samtals um 176 fm. eign á stórri lóð (1.200 fm) á góðum stað á Las Colinas golfvallasvæðinu, sem hefur verið valið eitt besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Um 1 klst. akstur suður af Alicante. Stór einkagarður með einkasundlaug, útisturta og glæsilegur einka púttvöllur. Útieldhús með góðri grill aðstöðu, sérstætt aukahús á lóð sem hægt er að nýta sem vinnuaðstöðu, geymslu eða gestahús.  Yfirbyggt bílskýli fyrir tvo bíla inni á lokaðri lóð. Sólarrafhlaða sem sparar allt að 60-70% af rafmagnsreikningnum. Þakverönd.
Þrjú svefnherbergi og þrjú baðherbergi, björt og góð stofa, eldhús opið við borðstofu. Góð tenging við garðinn, stóra verönd með frábærri aðstöðu og er hægt að ganga út í garðinn frá öllum rýmum.  Þvottahús inn af eldhúsi. Vönduð húsgögn og húsbúnaður fylgir, ásamt fallegum útihúsgögnum. Gólfhiti er í öllu húsinu. Sannarlega lúxuseign með öllu fyrir kröfuharða. Gott fjölskylduhús þar sem vel fer um alla.


Allar upplýsingar veita:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. GSM 00354 893 2495,
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is. GSM 0034  0034 615112869
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. karl@spanareignir.is. GSM 00354 777 4277.


Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina.
Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum, og einnig að einkastrandklúbb á Campoamor ströndinni. Glæsileg líkamsræktarstöð á svæðinu og auk þess tennis- og körfuboltavellir. Algjör lúxus fyrir vandláta. 

Fleiri góðir golfvellir eru í næsta nágrenni við Las Colinas golfvöllinn, t.d. La Finca, Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Vistabella, Lo Romero og fleiri.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor þar sem íbúar Las Colinas hafa aðgang að einkastrandklúbb.
Ca. 10-15 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.

Hér er um að ræða glæsilega eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu og vinum.
Húsið er sérlega vel skipulagt og gott flæði í því.

Verð 1.000.000 Evrur ( 145.000.000ISK) + kostn. við kaupin miðað við gengi 1Evra=145ISK.

HÚSIÐ AFHENDIST 1. NÓV. 2025 EÐA EFTIR NÁNARA SAMKOMULAGI.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir. 

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með mjög hagstæðum vöxtum.


Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.12%.

Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug, air con, gólfhiti, golf, þakverönd, útsýni,
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
945240724

Myndir (47)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Desjamýri 13J
Skoða eignina Desjamýri 13J
Desjamýri 13J
270 Mosfellsbær
257.9 m2
Atvinnuhúsn.
15
473 þ.kr./m2
122.000.000 kr.
Skoða eignina Völvufell 24
Bílskúr
Skoða eignina Völvufell 24
Völvufell 24
111 Reykjavík
202.2 m2
Raðhús
725
623 þ.kr./m2
125.900.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
Spánn - Costa Blanca
200 m2
Einbýlishús
423
1008 þ.kr./m2
201.500.000 kr.
Skoða eignina Njörvasund 13
Bílskúr
Skoða eignina Njörvasund 13
Njörvasund 13
104 Reykjavík
191.9 m2
Einbýlishús
723
964 þ.kr./m2
185.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin