Fasteignaleitin
Skráð 22. okt. 2025
Deila eign
Deila

Bárusker 3b

RaðhúsSuðurnes/Sandgerði-245
82.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
57.900.000 kr.
Fermetraverð
705.238 kr./m2
Fasteignamat
46.000.000 kr.
Brunabótamat
49.800.000 kr.
Byggt 2022
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2525366
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Frá 2022
Raflagnir
Frá 2022
Frárennslislagnir
Frá 2022
Gluggar / Gler
Frá 2022
Þak
Frá 2022
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita/Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Stuðlaberg fasteignasala kynnir 82,1m² eign í raðhúslengju í fjölskylduvænu og nýju hverfi í Sandgerði. 

Um er að ræða fallega, bjarta og vel skipulagða eign í raðhúsalengju í nýju hverfi í Sandgerði. Eignin var byggð 2022 og er á einni hæð með sérinngangi að norðanverðu og aðgengi út á sólpall með skjólveggjum að sunnanverðu. Í nágrenni er öll helsta þjónusta, grunnskóli og leikskóli, sundmiðstöð, líkamsrækt og verslun. 

Fasteignamat næsta árs er 53.000.000 kr. 

Lýsing og skipulag eignar:

Forstofa með flísalögðu gólfi og plássmiklum fataskáp.
Eldhús með vandaðri innréttingu, mjúklokun á skúffum og hurðum, innbyggðri uppþvottavél, ofni og örbylgjuofni. Harðparket er á gólfi.
Stofa og borðstofa eru í opnu björtu alrými með harðparketi og útgengi út á timburklæddan sólpall með skjólveggjum.
Hjónaherbergi með plássmiklum fataskáp. 
Svefnherbergi með fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með snyrtilegri innréttingu, upphengdu salerni og walk-in sturtu. Þvottaaðstaða er innan baðherbergis með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Geymsla innan íbúðar, um 3,8 m² að stærð.
Sólpallur um 18 m², timburklæddur með skjólveggjum í átt að sól yfur daginn.

Byggingarlýsing:
Húsið er byggt úr timbri á staðsteyptum undirstöðum með kraftsperruþaki. Útveggir eru klæddir með bandsagaðri timburklæðningu í dökkgráum lit. Hurðir og gluggar eru úr timbri í hvítum lit. Þakkantur er timburklæddur í hvítum lit og þak er báruklætt (aluzink). Gólfhiti er í rýmum.

Lóð og aðkoma:

Lóðin er tyrfð og snyrtileg með malbikuðum bílastæðum fyrir framan enda húsaraðarinnar. Við enda raðhúslengjunar eru sorptunnuskýli. Unnið er að malbikun af Suðurnesjabæ við enda lengjunar. Að auki er mikil uppbygging í hverfin og unnið er að götu frá hverfinu beint inn á Sandgerðisheiði.

-

Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til Stuðlaberg fasteignasölu er kr. 59.000 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Stuðlaberg fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Rúnar Júlíusson
Aðstm. fasteignasala 
s. 862-7947 eða 420-4000
runar@studlaberg.is
-
Brynjar Guðlaugsson
Lögg. fasteignasali
s. 896-5464 eða 420-4000
brynjar@studlaberg.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
21/09/202327.650.000 kr.49.500.000 kr.82.1 m2602.923 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bárusker 3 B
Opið hús:26. okt. kl 15:00-15:30
Skoða eignina Bárusker 3 B
Bárusker 3 B
245 Sandgerði
82.1 m2
Raðhús
312
705 þ.kr./m2
57.900.000 kr.
Skoða eignina Bárusker 0104 2
Skoða eignina Bárusker 0104 2
Bárusker 0104 2
245 Sandgerði
83.1 m2
Fjölbýlishús
32
697 þ.kr./m2
57.900.000 kr.
Skoða eignina Brekadalur 72
Skoða eignina Brekadalur 72
Brekadalur 72
260 Reykjanesbær
90.3 m2
Fjölbýlishús
312
663 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Tjarnabraut 2
Skoða eignina Tjarnabraut 2
Tjarnabraut 2
260 Reykjanesbær
77.4 m2
Fjölbýlishús
312
774 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin