RE/MAX og Þorsteinn Yngvason, lögmaður/löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu fallegt og vel skipulagt raðhús á tveimur hæðum á frábærum stað við Þorláksgeisla 46, í Grafarholti.✅ Rúmgott og vel skipulagt hús
✅ 4 svefnherbergi & möguleiki að bæta við herbergi
✅ Tvö baðherbergi
Húsið skiptist með eftirfarandi hætti: Forstofa, stofa/alrými, eldhús, fjögur svefnherbergi, sjónvarpsstofa, tvö baðherbergi, þvottahús, bílskúr og geymsla. Samkvæmt HMS er birt flatarmál eignarinnar 190 fm, þar af er íbúðarrýmið 158,3 fm og bílskúrinn 31,7 fm.
Nánari lýsing:Neðri hæð:Forstofa: Flísar á gólfi og fataskápur. Innangengt í bílskúrinn frá rýminu.
Gangur/hol: Parketi á gólfi og útgengt út á baklóð.
Svefnherbergi I: Parket á gólfi.
Svefnherbergi II: Parket á gólfi og fataskápur.
Svefnherbergi III: Parket á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi I: Flísar á gólfi og hluta veggja. Hvít baðinnrétting með speglaskáp. Hornbaðkar, sturtuklefi, handklæðaofn og upphengt salerni.
Þvottahús: Flísar á gólfi. Innrétting undir þvottavél og þurrkara með skúffum og skápum. Vaskur í innréttingunni.
Bílskúr: 31,7 fm. Er með rafmagni og heitu og köldu vatni, ásamt bílskúrshurðaopnara. Geymsla inn af bílskúrum.
Efri hæð:Eldhús: Flísar á gólfi. Nýlega endurnýjuð eldhúsinnrétting að hluta með góðu skápaplássi og borðkrók. Bakaraofn í vinnuhæð, helluborð og vaskur.
Stofa/borðstofa: Parket á gólfi. Rúmgott og bjart rými. Góðir gluggar til suðurs. Útgengt út rúmgóðar timburklæddar suðursvalir frá rýminu.
Sjónvarpshol: Parket á gólfi. Möguleiki á að breyta í aukaherbergi.
Hjónasvíta: Parket á gólfi, gluggum til norðurs og góðum skápum. Auk þess er inngengt inn á sér baðherbergi og fataherbergi úr hjónaherbergi.
Baðherbergi II: Flísar á gólfi og hluta veggja. Hvít baðinnrétting með spegjaskáp. Sturtuklefi og upphengt salerni.
Fataherbergi: Rennihurð inn í rýmið. Fataskápar.
Annað:Fyrir framan húsið eru hellulögð bílastæði, upphitað plan og gróinn garður. Húsið stendur við rólega götu á vinsælum stað þar sem stutt er í leikskóla, skóla og útivistarsvæði. Staðsetningin er sérstaklega fjölskylduvæn, en húsið liggur á milli Ingunnarskóla og Sæmundarskóla.
Í næsta nágrenni eru fjölbreyttar göngu- og hjólaleiðir, falleg náttúra og skógarsvæði sem skapa einstakt útivistarsvæði fyrir fjölskylduna. Stutt er í Reynisvatn, frisbígolfvöll, minigolf og golfvöll ásamt fjölmörgum öðrum útivistarmöguleikum sem gera staðsetninguna sérstaklega aðlaðandi fyrir útivistarfólk og fjölskyldur.
Frekari upplýsingar veitir:
Þorsteinn Yngvason // lögmaður / löggiltur fasteignasali // E-mail: thorsteinn@remax.is // Sími: 696-0226