Trausti fasteignasala og ÞG Verk kynna með stolti: Nýja og glæsilega 5 herbergja íbúð á 4. hæð með tveimur bílastæðum í bílakjallara við Dugguvog 13 í Vogabyggð, 104 Reykjavík. Tvö bílastæði fylgja eigninni og eru í rúmgóðum bílakjallara og er innangengt úr bílakjallara í lyftu- og stigahús. Séreignageymsla í kjallara. Afhending er við kaupsamning.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 122,2fm. og þar af er geymsla 18,3fm. Bílastæðin í bílakjallara er ekki inn í fermetratölu eignarinnar.
Sýnum samdægus, bókið skoðun hjá: Guðbjörgu G. Sveinbjörnsdóttur, lögg. fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfangið gudbjorg@trausti.is eða Dönu Gunnarsdóttur, aðstoðarm. fasteignasala í síma 6981879 eða á netfanginu dana@trausti.is
Nánari lýsing: Íbúðin skiptist í anddyri/forstofu, eldhús opið við alrými/stofu, 4 svefnherbergi og baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Útgengt er út á svalir úr stofu.Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins,
smelltu hér til að fara á heimasíðu ÞG-VerkVogabyggð er skjólsæl perla á höfuðborgarsvæðinu í nálægð við hafið og náttúruna. Frábær kostur fyrir þá sem kjósa að búa í umhverfi sem býður bæði upp á borgarbrag og í senn sterka tengingu við náttúruna. Hjóla- og göngustígar liggja meðfram ströndinni sem og upp í Elliðaárdal. Þá er Laugardalurinn innan seilingar.
ÞG Verk hafa yfir 25 ára reynslu á byggingarmarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð ÞG verks og fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við viðskiptavini sína.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR:
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir lgfs. í s: 899-5949 / gudbjorg@trausti.isHúsið er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klæddir með báru-álklæðningum eða sléttum-álklæðningum sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini.
Innréttingar: Í eldhúsum og baðherbergjum eru frá þýska framleiðandanum Nobilia og fataskápar frá GKS smíðaverkstæði. Eldhúsinnréttingar eru mismunandi útfærðar eftir íbúðum. Lýsing undir efri skápum í eldhúsum. Speglaskápar eru á aðalbaðherbergjum.
Eldhústæki: Íbúðunum fylgja eldhústæki af gerðinni AEG. Íbúðum er skilað með span helluborði, innbyggðum kæliskáp, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni og viftu eða lofthengdum eyjuháfi þar sem það á við.
Hreinlætistæki: Salernisskál er vegghengd með innbyggðum vatnskassa. Sturtur eru með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Hreinlætistæki eru frá Grohe, hitastýrð eða einnar handar. Þvottahús eru ýmist innan baðherbergja eða í sér rými.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.
Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.
Eignin afhendist skv nánari skilalýsingu.