Fasteignaleitin
Skráð 1. sept. 2025
Deila eign
Deila

Efstasund 11

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
275 m2
10 Herb.
8 Svefnh.
4 Baðherb.
Verð
159.000.000 kr.
Fermetraverð
578.182 kr./m2
Fasteignamat
104.600.000 kr.
Brunabótamat
84.600.000 kr.
Mynd af Snorri Björn Sturluson
Snorri Björn Sturluson
Hdl., Löggiltur fasteignasali. Eigandi.
Byggt 1946
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2018003
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Endurnýjaðar að hluta
Raflagnir
Endurnýjaðar að hluta
Frárennslislagnir
Gamlar - Ekki vitað
Gluggar / Gler
Gamalt
Þak
Gamalt - Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Stórar þaksvalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Valhöll kynnir einbýlishús ásamt bílskúr sem búið er að skipta upp í fjórar íbúðir. Eignin hentar vel fyrir stórar fjölskyldur þar sem allir fá sitt eigið pláss eða sem fjárfestingartækifæri. Í dag eru þrjár íbúðir í útleigu í húsinu. Frábær staðsetning og eftirsóttar leiguíbúðir.

Í heildina er eignin skráð 275 fm á stærð og þar af er bílskúrinn 56 fm. Það er búið að innrétta bílskúrinn sem íbúð. Byggingarár hússins er árið 1946 en árið 2006 var byggt við húsið og er því stór hluti þess nýrri. Eignin er á tveimur fasteignanúmerum. 

Að utan er húsið klætt og nýlega málað. Stór innkeyrsla með nægum bílastæðum og góður bakgarður með grasbala og geymsluskúr.


Fasteignamat ársins 2026 verður 166.550.000 kr.

Nánari upplýsingar veita

Snorri Björn Sturluson fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða tölvupósti á netfangið snorribs@valholl.is
Hörður Sverrisson fasteignasali í síma 899-5209 eða í tölvupósti á netfangið hordur@valholl.is

Nánari lýsing:

Íbúð 1:
Aðal hæð hússins (106,8 fm) er með sérinngangi af stórri verönd við suðurhlið hússins. Einnig er inngangur frá götu. Innihurðir hafa nýlega verið endurnýjaðar. Í íbúðinni eru fimm svefnherbergi, sem eru öll í útleigu. Baðherbergi er nýlega endurnýjað með upphengdu salerni, sturtu með gleri og opnanlegum glugga. Eldhús með endurnýjaðri innréttingu með góðu skápaplássi. Rúmgóð flísalögð forstofa/hol. Stofan er björt með gluggum á tvo vegu með rennihurð út á verönd. Sameiginleg þvottaaðstaða er í kjallara.

Íbúð 2:
Studioíbúð í kjallara ( 49,9 fm) sem er í útleigu með sér bílastæði og inngangi frá norður hlið. Flísalögð gólf og endurnýjuð eldhúsinnrétting. Rúmgott baðherbergi með stórum sturtuklefa og innrétting með vask. Sameiginleg þvottaaðstaða og geymsla í kjallara.

Íbúð 3:
Rísíbúð, ósamþykkt þriggja herbergja íbúð á sér fasteignanúmeri (62,3 fm) sem er í útleigu. Gengið er upp stiga á norðurhlið hússins þar sem er mjög stór þak verönd með útsýni, sér inngangur er í íbúðina frá veröndinni. Tvö svefnherbergi, hol, baðherbergi með innréttingu, baðkari og tengi fyrir þvottavél. Eldhús með innréttingu og stórum glugga, pláss fyrir eldhúsborð. Stofa/ inngangur með hurð út á verönd. Jafnframt er inngangur frá götu á 1. hæð inn í sameiginlegt hol og stiga upp í íbúð.

Íbúð 4:
Bílskúr, innréttaður sem tveggja herberga íbúð (56,0 fm) Nýtt þak, rafmagns- og vatnslagnir. Bílskúrinn skiptist í opið rými alrými með forstofu, eldhúsi og stofu. Hljóðeinangrandi plötur á veggjum. Baðherbergi með upphengdu salerni, handklæðaofni, sturtuklefa með gleri, innréttingu og opnanlegum glugga. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Nánari upplýsingar veitir:
Snorri Björn Sturluson fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða tölvupósti á netfangið snorribs@valholl.is
Hörður Sverrisson fasteignasali í síma 899-5209 eða í tölvupósti á netfangið hordur@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
24/02/202271.700.000 kr.75.000.000 kr.212.7 m2352.609 kr.
19/02/201541.400.000 kr.40.500.000 kr.212.7 m2190.409 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 1948
56 m2
Fasteignanúmer
2018003
Byggingarefni
Holsteinn
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
11.400.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
62.3 m2
Fasteignanúmer
2018003
Húsmat
38.580.000 kr.
Lóðarmat
8.070.000 kr.
Fasteignamat samtals
46.650.000 kr.

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Langholtsvegur 6
Bílskúr
Skoða eignina Langholtsvegur 6
Langholtsvegur 6
104 Reykjavík
225 m2
Fjölbýlishús
325
709 þ.kr./m2
159.500.000 kr.
Skoða eignina Barðavogur 34
3D Sýn
Bílskúr
Skoða eignina Barðavogur 34
Barðavogur 34
104 Reykjavík
277 m2
Einbýlishús
946
631 þ.kr./m2
174.900.000 kr.
Skoða eignina Melbær 41
Skoða eignina Melbær 41
Melbær 41
110 Reykjavík
278.8 m2
Raðhús
1037
609 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Skoða eignina Grænlandsleið 19
Bílskúr
Grænlandsleið 19
113 Reykjavík
240.4 m2
Raðhús
524
682 þ.kr./m2
163.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin