Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- dora@eyjaeignir.is og Eyjaeignir fasteignasala kynna í einkasölu: Vesturveg 5 sem er björt og falleg 4 herbergja íbúð á 3. hæð í fjölbýli í Vestmannaeyjum. Sérstæði í sameiginlegum bílakjallara fylgir eigninni. Eignin er byggð úr steini árið 2008 og er 118,1 m2, þar af er geymsla í kjallara 5 m2. Sérlega glæsileg og vel skipulögð íbúð í lyftublokk á besta stað í eyjum í göngufæri við alla helstu þjónustu.
BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið dora@eyjaeignir.is eða í síma 8611105Nánari lýsing:
Forstofa: Flísar á gólfi, góður skápur
Svefnherbergi: Parket á gólfi, skápur
Stofa: Flísar á gólfi, útgengt á svalir með útsýni yfir miðbæinn
Eldhús: Flísar á gólfi, eikar innrétting, tveir ofnar, eyja, steinn á borðum
Baðherbergi: Flísar í hólf og gólf, walk in sturta, upphengt wc, góð innrétting, tengi og innrétting fyrir þvottavél og þurrkara ásamt skolvask.
Svefnherbergi: Parket á gólfi, skápur
Svefnherbergi: Parket á gólfi
Geymsla: Steypt gólf, hillur
Stæði í bílakjallaraGjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Eyjaeignir fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.