Fasteignaleitin
Skráð 11. jan. 2025
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR -San Miguel de Salinas

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
91 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
25.360.000 kr.
Fermetraverð
278.681 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
101080125
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
Stórar svalir
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*NÝTT Í SÖLU*-*NOTALEGAR OG VEL STAÐSETTAR ÍBÚÐIR Í EKTA SPÆNSKUM SMÁBÆ - FRÁBÆR VERÐ"
Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. adalheidur@spanareignir.is og 
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. karl@spanareignir.is

Fallegar og vel hannaðar nýjar íbúðir á frábæru verði á góðum stað í San Miguel de Salinas, rótgrónum spænskum smábæ rétt hjá fjölmörgum góðum golfvöllum og í örstuttu göngufæri frá verslunum, veitingastöðum, skóla, götumarkaði ofl. sem gerir lífið á Spáni skemmtilegt.  Um 40-50 mín akstur suður af Alicante. Tvö eða þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi, góð stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými. Verönd og sér garður eða góðar svalir og auk þess aðgengi að glæsilegum sameiginlegum sundlaugargarði.
Íbúðirnar eru með frá 92-211fm. sérafnotafleti.
Þessar íbúðir eru að seljast hratt, enda frábær staðsetning og gott verð.
Hafið samband og fáið allar upplýsingar.


Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.
Sér bílastæði í bílakjallara og geymsla.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d.  Las Colinas,  La Finca, Vistabella,  Las Ramblas, Campoamor, Villamartin.
Ca. 15 mín akstur er niður á ströndina í Dehesa de Campoamor og Cabo Roig ca. 15 mín. akstur í  La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina.

San Miguel de Salinas er notalegur, hefðbundinn spænskur bær með sál og sjarma, kirkjutorgi og götumarkaði.
Hér er um að ræða notalega eign í rólegu og fallegu umhverfi. Tilvalið fyrir ungar barnafjölskyldur sem vilja búa í sól og góðu veðri allt árið, enda er góður skóli í örstuttu göngufæri og öll þjónusta í nærumhverfi. Einnig draumastaður golfarans sem vill spila marga og skemmtilega golfvelli.


Hægt er að fá íbúðirnar afhentar fullbúnar húsgögnum og heimilistækjum, gegn auka gjaldi.

Verð miðað við gengi 1Evra=145ISK.

2 svefnh. + 2 baðh. verð frá 174.900 evrur (25.300.000 ISK) +10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin.

Á sama stað er hægt að fá stærri íbúðir:
3 svefnh. + 2 baðh. verð frá 204.900 evrur (29.700.000 ISK) 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin.

Íbúðirnar verða tilbúnar til afhendingar í jan/feb. 2026.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með mjög hagstæðum vöxtum.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Við erum rótgróin íslensk fasteignasala og höfum um árabil sérhæft okkur í sölu fasteigna á Spáni.
Löggiltur íslenskur fasteignasali með mikla reynslu af fasteignasölu á Spáni sér um allt söluferlið og leggur áherslu á trausta og örugga þjónustu. Í boði eru góðar heildarlausnir þar sem öllu kaupferlinu er fylgt vel eftir frá upphafi til enda.

Við aðstoðum við að skipuleggja skoðunarferðina, velja staðsetningu og heppilega eign, kaupsamningsgerð, útvegum NIE númer, aðstoðum við fjármögnun, bankamál og allt sem til fellur.
Þú ert í góðum höndum hjá okkur.


Meira um SAN MIGUEL DE SALINAS:
San Miguel de Salinas er skemmtilegur spænskur bær í aðeins 15 mínútna akstursfjarlægð frá ströndum Mil Palmeras, Campoamor, Cabo Roig, La Zenia, Torrevieja, La Mata, Guardamar o.fl.  Bærinn er umkringdur fallegri sveit þar sem augað lítur fallega sítrus- og möndlurækt og þjóðlendu garð Sierra Escalona rétt við þröskuldinn. Hægt er að ganga og hjóla marga kílómetra meðfram síkinu sem liggur rétt við bæinn.
 
Í San Miguel de Salinas er mikið úrval af skemmtilegum veitingastöðum, bæði spænskum og alþjóðlegum (tæplega 30 í miðbænum einum, sem þýðir að árlegur tapas-viðburður er mjög vinsæll!!). Ef þú ert að leita að áfangastað til að dvelja í fríum, eða stað til að búa á allt árið um kring, þá er San Miguel de Salinas frábær kostur þar sem í bænum hefur þú alla nauðsynlega þjónustu og  öll  þægindi (góðir grunn- og framhaldsskólar, bankar, heilsugæslustöð sem er opin allan sólarhringinn, apótek, góð aðstaða til íþrótta, td. sundlaug, fótbolta- og frjálsíþróttavöllur, tennisvellir, padelvellir, körfuboltavellir, petanca ofl.
Í bænum er líka skemmtileg  blanda af spænskum og alþjóðlegum nágrönnum.
 
Stemmingin er þægileg og afslappandi og verð á börum og veitingastöðum hafa tilhneigingu til að vera lægri en á ströndinni, td. glas af góðu rauðvíni beint úr tunnunni. Vikulegur miðvikudagsmarkaður er frábært tækifæri til að birgja sig upp af staðbundnum ferskum ávöxtum og grænmeti, skinkum, ostum, ólífum, fötum og skóm o.s.frv., áður en þú færð þér drykk og tapas í einni af vinalegu tavernunum í bænum!
 
Það er góð  leigubílaþjónusta á staðnum og almenningsvagnar ganga nokkrum sinnum á dag til Torrevieja, Orihuela og Murcia.
Alicante og Murcia flugvöllur eru báðir í um 40-50 mínútna akstursfjarlægð. Netfyrirtækið á staðnum býður upp á áreiðanlegar, háhraða (ljósleiðara) nettengingar, sem auðveldar fólki að vinna í fjarvinnu.
San Miguel er staður þar sem þú nýtur hefðbundins  spænsks lífstíls og menningar, án þess að fórna þægindum af fyrsta flokks aðstöðu og umhverfi.
San Miguel de Salinas er sérlega vinalegur bær sem við vitum að þú munt elska!


Eiginleikar: ný eign, verönd,  sameiginlegur sundlaugargarður, air con, golf,
Svæði: Costa blanca, San Miguel de Salinas,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
101080125
Fasteignanúmer
101080125

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vesturgata 10
Skoða eignina Vesturgata 10
Vesturgata 10
625 Ólafsfjörður
83.4 m2
Fjölbýlishús
312
294 þ.kr./m2
24.500.000 kr.
Skoða eignina Túngata 22a
Skoða eignina Túngata 22a
Túngata 22a
230 Reykjanesbær
90.9 m2
Fjölbýlishús
313
285 þ.kr./m2
25.900.000 kr.
Skoða eignina Hólavegur 16
Skoða eignina Hólavegur 16
Hólavegur 16
580 Siglufjörður
108.6 m2
Fjölbýlishús
413
244 þ.kr./m2
26.500.000 kr.
Skoða eignina Hvanneyrarbraut 58
Hvanneyrarbraut 58
580 Siglufjörður
79.4 m2
Fjölbýlishús
312
314 þ.kr./m2
24.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin