Fasteignaleitin
Opið hús:12. maí kl 17:00-17:30
Skráð 6. maí 2025
Deila eign
Deila

Lynggata 1

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
102.9 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
84.900.000 kr.
Fermetraverð
825.073 kr./m2
Fasteignamat
83.000.000 kr.
Brunabótamat
66.270.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2018
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2362686
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
3
Vatnslagnir
Frá því að húsið var byggt
Raflagnir
Frá því að húsið var byggt
Frárennslislagnir
Frá því að húsið var byggt
Gluggar / Gler
Frá því að húsið var byggt
Þak
Frá því að húsið var byggt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Nýtt á skrá! Opið hús - Lynggata 1 Garðabæ - mánudaginn 12. maí klukkan 17:00 - 17:30

-- Glæsileg og vel skipulögð íbúð í lyftuhúsi með extra breiðu bílastæði í lokuðum bílakjallara --

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir glæsilega 102,9 fermetra 3ja herbergja íbúð á annarri hæð í lyftuhúsi með rúmgóðum svölum til suðurs við Lynggötu 1 í Garðabæ. Fallegt og vandað lyftuhús byggt árið 2018 af ÞG Verk. Íbúðin er með rúmgóðu alrými sem rúmar vel setustofu, borðstofu og eldhús með eyju. Extra breitt bílastæði í bílakjallara og búið að leggja fyrir rafhleðslustöðvum (hægt að leigja stöð). Geymsla fylgir íbúðinni sem er 8,2 fermetra stór. Snyrtileg og falleg sameign og er hjóla- og vagnageymsla staðsett á jarðhæð hússins.

Staðsetning er virkilega góð þar sem stutt er í verslanir, veitingastaði, kaffihús, leikskóla, grunnskóla og glæsileg útivistarsvæði. Oddur golfvöllur, Urriðavatn og Heiðmörk í göngufjarlægð. Vandað og skemmtilegt leiksvæði fyrir börn sunnan megin við húsið.

Nánari lýsing: 

Forstofa: Með harðparketi á gólfi og góðu fatahengi/fatarými sem er inn af forstofu.
Stofa: Er rúmgóð með harðparketi á gólfi. Rúmar vel setustofu og borðstofu. Stofa er opin við eldhús. Gluggar til suðurs. Útgengi á svalir.
Svalir: Eru rúmgóðar til suðurs og með viðarklæddu svalagólfi. 
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri eldhúsinnréttingu frá GKS með eldhúseyju. AEG stál bakaraofn, keramik helluborð, innbyggður kæliskápur með frysti og innbyggð uppþvottavél. Lýsing undir efri skápum og gluggar til suðurs. Eldhús er opið við borðstofu og stofu.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili, falleg innrétting við vask með speglaskáp fyrir ofan. Upphengt innbyggt salerni, handklæðaofn og opnanlegur gluggi til norðvesturs.
Þvottaherbergi: Er inn af baðherbergi. Innrétting (hækkun) undir þvottavél og þurrkara, skápar, hillur og útloftun.
Hjónaherbergi: Er rúmgott með harðparketi á gólfi, góðum skápum og glugga til norðvesturs.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til norðvesturs. 

Bílastæði í bílakjallara: Er virkilega vel staðsett og extra breitt. Snyrtilegur bílakjallari þar sem búið er að leggja grunnkerfi fyrir rafhleðslu. Hægt að leigja rafhleðslustöð

Sérgeymsla: Er 8,2 fermetrar að stærð.

Hjóla- og vagnageymsla: Er snyrtileg og er staðsett á jarðhæð hússins.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
09/03/201945.300.000 kr.52.500.000 kr.102.9 m2510.204 kr.
04/05/201818.800.000 kr.45.900.000 kr.102.9 m2446.064 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 2017
Fasteignanúmer
2362686
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B1
Númer eignar
2
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.820.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lautargata 3
Skoða eignina Lautargata 3
Lautargata 3
210 Garðabær
89.5 m2
Fjölbýlishús
312
926 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Lautargata 3 Íb. 001
Lautargata 3 Íb. 001
210 Garðabær
89.5 m2
Fjölbýlishús
312
926 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 6 íbúð 109
Eskiás 6 íbúð 109
210 Garðabær
90.1 m2
Fjölbýlishús
43
909 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Lautargata 4
Skoða eignina Lautargata 4
Lautargata 4
210 Garðabær
89.9 m2
Fjölbýlishús
413
967 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin