Fasteignaleitin
Skráð 14. mars 2025
Deila eign
Deila

Lautargata 3

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
89.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
82.900.000 kr.
Fermetraverð
926.257 kr./m2
Fasteignamat
67.900.000 kr.
Brunabótamat
54.550.000 kr.
Mynd af Guðrún Antonsdóttir
Guðrún Antonsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2024
Þvottahús
Lyfta
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2532503
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
nei
Lóð
7,60
Upphitun
Danfoss
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
MYNDIR ERU AF EIGNINNI SJÁLFRI ***
Guðrún Antonsdóttir fasteignasali kynnir LAUTARGÖTU 3, NÝ FULLBÚIN ÍBÚÐ MEÐ SÉR VERÖND. HÆGT ER AÐ SKOÐA  ALLA DAGA *** ÍBÚÐIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING. Byggingaraðili og seljandi er traustur og vandaður, Gunnar Bjarnason ehf


*** Nánari upplýsingar veitir Guðrún Antonsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 621-2020, tölvupóstur gudrun@fastlind.is ***

Nánari lýsing:
Forstofa með yfirhafnaskáp
Svefnherbergi eru tvö með fataskáp sem ná upp í loft. Parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, sturta með glerskilrúmi, innrétting undir og við handlaug og handklæðaofn.
Þvottahúsið er með flísum á gólfi, gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhúsið er með fallegri innrétting frá GKS. innfelldur ísskápur með frysti og innbyggð uppþvottavél, spanhelluborð, bakaraofn og örbylgjuofn.
Stofa/borðstofa er opið rými með eldhúsi. Gott pláss er fyrir borðstofuborð og gott sófasett. Útgengt út á rúmgóða sér verönd sem er að mestu yfirbyggð með lýsingu í lofti og rafmagnstengli
Geymsla er í sameign er skráð 5,1fm, staðsett sér við hlið íbúðar

Lautargata 3 er stórglæsilegt og flott hannað 10 ibúða fjölbýlishús
* Vandaðar innréttingar í eldhúsi og baðherbergi frá Nobila, GKS, hvítar eða svartar
* Fataskápar í öllum herbergjum og forstofu eru hvítir 
* Span helluborð og vifta. Blásturbakarasofn og sér örbylgjuofn í vinnuhæð. Innbyggð uppþvottavél og kæliskápur með sér frysti.
* Blöndunartækin eru frá viðurkenndum framleiðanda
* Aukin lofthæð.
* Lagnaleið fyrir rafmagnshleðslu út á bílastæði.
* Harðparket er á gólfum er12mm frá Parka og flísar á votrýmum
* Lýsing hönnuð af Lúmex, Innbyggð LED-ljós og kubbaljós eru að hluta í hverri íbúð. Hefðbundnir kúplar eru í herbergjum. Útiljós eru á svölum. Vatnsvarinn tengill er á svölum.

Almennt um húsið
Húsið afhendist fullbúið að utan, lóð fullbúin svo og bílastæði. Burðavirki hússins er staðsteypt úr járnbendri steinsteypu. Allir útveggir eru einangraðir að utan og klæddir álklæðningu og Bambus. Botnplata, milliplötur og þakplata eru staðsteyptar. Húsinu fylgja 15 bílastæði, þar af 1 stæði fyrir hreyfihamlaðra. Aðalinngangur hússins er á 2. hæð en einnig er annar inngangur á jarðhæð. Byggingaraðili og seljandi er Gunnar Bjarnason ehf

Um svæðið og nærliggjandi: Húsið er vel staðsett við ósnortina náttúru í jaðri hverfisins eru helstu útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins. Stutt í Urriðaholtsskóla, sem er grunn- og leikskóli hverfisins. Einn besti golfvöllur landsins (Oddur) er í göngufæri og sömuleiðis útivistarsvæðin í Heiðmörk, Vífilstaðarhrauni og við Urriðavatn. Efst á Háholti er gert ráð fyrir blandaðri byggð íbúða og þjónustu s.s verslun, heilsugæslu, skólum og íþróttamannvirkjum.

Kaupandi greiðir 0,3% af væntanlegu brunabótamáti þegar það verður lagt á íbúðina.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda.
Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

*** Nánari upplýsingar veitir Guðrún Antonsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 621-2020, tölvupóstur gudrun@fastlind.is ***
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eskiás 6 íbúð 302
Opið hús:16. mars kl 13:00-13:30
Eskiás 6 íbúð 302
210 Garðabær
93.7 m2
Fjölbýlishús
313
927 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Maríugata 11
Opið hús:19. mars kl 16:30-17:00
Skoða eignina Maríugata 11
Maríugata 11
210 Garðabær
95.4 m2
Fjölbýlishús
312
827 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 6 íbúð 103
Opið hús:16. mars kl 13:00-13:30
Eskiás 6 íbúð 103
210 Garðabær
92.5 m2
Fjölbýlishús
413
896 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 6 íbúð 201
Opið hús:16. mars kl 13:00-13:30
Eskiás 6 íbúð 201
210 Garðabær
91.2 m2
Fjölbýlishús
313
909 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin