DV logo
Fasteignaleitin
Opið hús:28. júlí kl 18:30-19:00
Skráð 25. júlí 2026

Arnarás 7

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
127.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
99.900.000 kr.
Fermetraverð
782.302 kr./m2
Fasteignamat
96.500.000 kr.
Brunabótamat
75.350.000 kr.
Mynd af Sigurjón Rúnarsson
Sigurjón Rúnarsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2000
2. hæð · efsta
Garður
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
2244558
Landnúmer
178971
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Þak
Yfirfarið og málað 2022
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Arnarás 7, 210 Garðabær, birt stærð 127.7 fm.
Falleg og vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð með sérinngangi, staðsett í hinu eftirsótta Ásahverfi í Garðabæ. Íbúðin skiptist í rúmgóða forstofu, bjarta stofu og borðstofu, opið eldhús með eyju, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með glugga, þvottahús innan íbúðar og rúmgóða 7,2 fm. geymslu í sameign.

Um er að ræða bjarta og vel við haldna eign í grónu og barnvænu hverfi þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, náttúru, göngustíga og alla helstu þjónustu. Húsfélagið er gott og samstarf íbúa virkt.

Nánari upplýsingar veita:
Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur pall@allt.is.
Sigurjón Rúnarsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5524, tölvupóstur sigurjon@allt.is.


Nánari lýsing:
Forstofan er rúmgóð með nýlegum PAX-skápahurðum og flísalögðu gólfi.
Eldhúsið er með vandaðri hvítri innréttingu frá AXIS, góðu skápaplássi, eyju, spanhelluborði, blástursofni og viftu. Rýmið opnast fallega inn í stofu og borðstofu, sem skapar bjart og notalegt heildarrými.
Stofan og borðstofan eru björt og rúmgóð, með útgengi út á skjólsælar 7 fm. suðvestursvalir sem snúa , sameiginlegum garði.
Svefnherbergin eru þrjú talsins, rúmgott hjónaherbergi og tvö barnaherbergi, öll búin filmuðum hvítum fataskápum frá AXIS.
Baðherbergið er flísalagt með smekklegri innréttingu, vaski og sturtubaðkari með nýlegum blöndunartækjum. Innréttinging ásamt skáp bak við hurð, hefur verið filmuð hvít. Tengi fyrir sturtu er þegar til staðar á bak við skápinn, sem gefur möguleika á að bæta sturtu við síðar.
Þvottahús er innan íbúðar með vinnuborði, vaski og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla er 7,2 fm að stærð, ásamt  sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Bílastæði eru sameiginleg fyrir framan húsið.

Eigninni hefur verið vel við haldið í gegnum árin að sögn seljanda, meðal annars:
2022:
 Þak yfirfarið og málað. Blöndunartæki í baðkari og sturtu endurnýjuð.
2021: Eldhús endurnýjað að hluta – nýr vaskur, bökunarofn og helluborð. Hvítt gler frá Íspan sett milli skápa og á borðplötu. Fataskápar og baðinnrétting filmuð af fagaðila. Íbúðin máluð í heild (loft og veggir), að þvottahúsi undanskildu.
2020: Þrýstijafnari endurnýjaður. Nýtt harðparket og gólflistar lagðir innan íbúðar.
2017: Húsið yfirfarið og málað að utan. 

Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
10/10/202375.250.000 kr.89.900.000 kr.127.7 m2703.993 kr.
02/12/202055.200.000 kr.63.000.000 kr.127.7 m2493.343 kr.
30/01/201228.800.000 kr.33.200.000 kr.127.7 m2259.984 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vindakór 2
Bílastæði
Hleðslustöð
Opið hús:28. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Vindakór 2
Vindakór 2
203 Kópavogur
123.2 m2
Fjölbýlishús
413
754 þ.kr./m2
92.900.000 kr.
Skoða eignina Asparholt 6
Efsta hæð
Skoða eignina Asparholt 6
Asparholt 6
225 Garðabær
116.8 m2
Fjölbýlishús
413
735 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 9
Opið hús:26. júlí kl 15:30-15:45
Skoða eignina Naustavör 9
Naustavör 9
200 Kópavogur
129.2 m2
Fjölbýlishús
413
928 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Kinnargata 92
Skoða eignina Kinnargata 92
Kinnargata 92
210 Garðabær
119 m2
Fjölbýlishús
412
1092 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin