*LAUS VIÐ KAUPSAMNING*
Lögheimili eignamiðlun kynnir bjarta og fallega 4ra herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi, ásamt bílskúr, á góðum og fjölskylduvænum stað. Birt stærð eignar er samtals 122,7 fm. og þar af er bílskúr 20,9 fm., skv. fasteignayfirliti. Suður svalir. Stór sameiginleg lóð. Örstutt er í grunnskóla, leikskóla, íþróttafélag og í göngufæri við þjónustu og verslun.
Endurnýjað og viðgert:
Húsið: Sumarið 2024 var skipt um stofuglugga og gluggar málaðir. Árið 2017 var járn á þaki hússins endurnýjað. Árin 2017-2018 var húsið sprunguviðgert og málað í heild sinni.
Íbúð: Árið 2022 var eldhúsinnrétting ásamt tækjum endurnýjuð og settar nýjar flísar á eldhúsgólf og anddyri. Árið 2017 var endurnýjað í baðherbergi.
Bílskúr: Árið 2021 var ljósum á bílskúrum skipt út fyrir ný. Árið 2017 var soðinn dúkur settur á þak bílskúra.
Eignini skiptist í: Þrjú svefnherbergi, anddyri, hol, stofu/borðstofu, eldhús, baðherbergi, sérgeymslu í kjallara og bílskúr.
Nánari upplýsingar veitir: Eggert Ólafsson, löggiltur fasteignasali, í síma 893 1819, eggert@logheimili.is
Nánari lýsing:
Anddyri: Opið inn í hol.
Hol: Með fataskáp og opið inn í stofu.
Stofa/borðstofa: Björt og með útgengt á suður svalir.
Eldhús: Endurnýjuð hvít innrétting, tengi fyrir uppþvottavél og opið inn í hol.
Hjónaherbergi: Með fataskáp.
Tvö barnaherbergi: Annað er með fataskáp.
Baðherbergi: Hvítur skápur undir vask og einnig á vegg, rúmgóð flíslögð sturta með glerskilrúmi, upphengt salerni og flísar upp veggi.
Gólfefni: Parket er á gólfum, nema á herbergjum þar sem er plastparket og á eldhúsi, baðherbergi og anddyri þar sem eru flísar.
Sérgeymsla: Í kjallara.
Þvottahús og hjólageymsla: Sameiginlegt í kjallara.
Bílskúr: Er með göngudyrum á bílskúrshurð, rafmagni, 3ja fasa tengil, hitaveitu og köldu rennandi vatni.
Annað: Samkvæmt fasteignayfirliti er birt stærð íbúðar 96,3 fm., geymslu í kjallara 5,5 fm. og bílskúrs 20,9 fm., eða samtals 122,7 fm. Myndir í auglýsingu voru teknar árið 2023 og ekki sömu litir í dag á öllum inniveggjum. Geyslahitun með hitaveitu, er í loftum íbúðarinnar.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lögheimili eignamiðlun því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4 til 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá. Nánari upplýsingar eru t.d. á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.