Eignaver 460-6060
Goðabyggð 17 Akureyri. ***Opið hús laugardaginn 19.09.2026 frá 12:00 - 13:00, verðið öll velkomin***
Fallegt, mikið endurnýjað og skemmtilega hannað 5 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum ásamt bílskúr á Brekkunni. Húseignin er samtals 254,9 fm.
Húseignin er á tveimur hæðum, aðalhæð skiptist í þvottahús, geymslu og inntaksrými, eldhús, vinnueldhús/búr, borðstofu, litla snyrtingu og stofu þar sem er gengið út á stóran sólpall til suðurs og austurs. Stigi upp á efri hæð, er góður herbergisgangur með útgengi út á svalir til vesturs, auk þess er steypur pallur vestan við húsið. Einnig er á efri hæð, hjónaherbergi með fataherbergi og tvö barnaherbergi ásamt baðherbergi.
Viðbygging tengir saman íbúðarhús og bílskúr, þar er forstofa og stórt svefnherbergi. Bílskúr, rafdrifin innkeyrsluhurð, hillur og bakdyr út á pall bakvið húsið.
Nánari lýsing
Neðri hæð:
Forstofa, ljósar flísar og fataskápur, hiti í gólfi og nýleg útidyrahurð.
Svefnherbergið er mjög rúmgott, flísar á gólfi.
Eldhús, þar nýleg, falleg spónlög eikarinnrétting með eyju, flísar á gólfi.
Stofa, parket á gólfum, nýleg svalahurð út á rúmgóða og fína verönd og þar er heitur pottur.
Borðstofa, flísar á gólfi og fallegir stórir gluggar til vesturs og þar er rennihurð út á verönd til vesturs.
Búr/vinnueldhús, rúmgott með hillum og skápum.
Þvottahús, flísar á gólfi. Nýleg útidyrahurð.
Geymsla og inntaksrými, steypt gólf og hillur í geymslu.
Snyrting, flísar á gólfi og hluta veggja.
Heitur pottur er á verönd.
Bílskúr, er með rafdrifinni bílskúrshurð og snjóbræðsla er í innkeyrslu.
Efri hæð:
Hjónaherbergið er sérlega rúmgott og bjart, með fataherbergi inn í enda. Góður gluggi í vestur með flottu útsýni.
Gangur, parket á gólfi. Þaðan er útgengt út á góðar svalir til vesturs. Flott útsýni frá svölum !
Tvö barnaherbergi eru á svefnherbergisgangi á efri hæð, fataskápur er í öðru herberginu, parket á gólfum herbergja. Nýleg svalahurð út á svalir, gott útsýni.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggjum, dökk innrétting og speglaskápur, upphengt wc, baðkar með sturtutækjum og handklæðaofn.
Annað;
- Húsið var endurhannað af Kollgátu arkitektastofu í samvinnu við Eflu verkfræðistofu. Sperrur voru hækkaðar, þak endurnýjað, loftun aukin, einangrað með steinull, þakskegg og nýbygging klædd með Cumaru Tekki. Húsið einangrað að utan með steinullarklæðningu og klætt að utan með smábáruklæðningu frá Áltaki og tekkklæðningu.
- Gluggar og gler nýlega endurnýjað.
- Þak og þakrennur nýlega endurnýjað.
- Nýleg innfelld lýsing í þakkanti.
- Útidyrahurðir og svalahurðir nýlega endurnýjaðar.
- Nýleg innkeyrsluhurð í bílskúr.
- Vatnslagnir endurnýjaðar að miklu leiti.
- Gólfhiti í flestum rýmum hússins.
- Gólfsíðir gluggar í stofu og borðstofu.
- Nýleg svalahurð og gólfhiti í öllum rýmum efri hæðar.
- Raflagnir og rafmagnstafla endurnýjað að mestu leiti.
- Innréttingar, innihurðir og gólfefni nýlega endurnýjað að mestu leiti.
- Nýlegar teikningar
- Frábær staðsetning, stutt í alla helstu þjónustu og skóla.
- Húseignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu ehf.
Nánari upplýsingar veita:
Tryggvi s: 862-7919 / tryggvi@eignaver.is
Arnar s: 898-7011 / arnar@eignaver.is
Begga s: 845-0671 / begga@eignaver.is