
Viltu fasteignasala kynnir glæsilega 55 fm íbúð í lyftuhúsi að Vinastræti 2 í Urriðaholti. Húsið er byggt árið 2019 af ÞG verktökum. Samkvæmt HMS er birt stærð íbúðar 55 fm þar af er íbúðin 47,5 fm og geymsla 7,5. Einnig er rúmgóður sólpallur í suð-vestur. Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í bílakjallara með rafhleðslustöð.
Almennt um húsið:
Íbúðirnar í húsinu er 18 talsins. Stærð íbúða er frá 55 fm. upp í 123 fm. og ýmist með svölum eða sérafnotareit með palli. Geymslur eru í kjallara. Húsið er klætt að utan með vönduðum álklæðningum sem tryggir lágmarks viðhald hússins.
Staðsetning:
Urriðaholtið er frábærlega staðsett, óspillt náttúra allt í kringum hverfið, stutt í skóla og verslanir í Kauptúni. Örstutt er niður á Reykjanesbraut og þar með umferðaræðar höfuðborgarsvæðisins.
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Nánari lýsing
Forstofa: er með góðum fataskáp og parket er á gólfi.
Eldhús: er með fallegri hvítri innréttingu frá GKS framleiddar af Nobilia í Þýskalandi samkvæmt ítrustu gæðakröfum. Uppþvottavél og ísskáppur eru innbyggð. Parket er á gólfi.
Alrými: eldhús,stofa og borðstofa eru í sameiginlegu rými með útgengi á rúmgóða sólpall í suð-vestur. Parket er á gólfi.
Svefnherbergi: er með hvítum rúmgóðum fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi: er með stílhreinni hvítri innréttingu, walk in sturtu, upphengdu salerni og handklæðaofn. Aðstæða er fyrir þvottavél og þurrkara inná baðherbergi. Flísar eru á gólfi og hluta veggja.
Rúmgóð geymsla er í kjallara hússins ásamt sérmerktu bílastæði í bílahúsi með rafhleðslustöð.
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
200 | 64,8 | 70 | ||
200 | 63,9 | 67 | ||
200 | 62,5 | 73 | ||
200 | 61,5 | 67 | ||
200 | 184,4 | 94,9 | ||
210 | 88,3 | 93,9 |