LIND fasteignasala kynnir vel skipulagða og bjarta 6 herbergja eign í endanum á botnlangagötu í litlu fjölbýli við Reykás 26 í Árbænum. Eignin er skráð alls 190,3 fermetrar, þar af 26,4 fermetra bílskúr. Glæsileg stór stofa og borðstofa með mikilli lofthæð og nýlegu parketi á gólfi ásamt nýlega endurnýjuðu eldhúsi, gengið út á suðursvalir með fallegu útsýni úr alrými. Möguleiki er á að fjölga herbergjum innan eignar.
Nánari upplýsingar veitir:
Arnbjörn Marinósson í síma 822-8574 eða á netfanginu arinbjorn@fastlind.is
Framkvæmdir á húsi síðastliðin ár:
2025 - Stigagangur múraður, málaður, skipt um teppi, ljósarofar endurnýjaðir ásamt ljósum. Eldvarnir endurnýjaðar.
2025 - Skipt út gluggum ásamt gleri í eldhúsi og stofu í austurátt, skipt um gler í herbergi II.
2025 - Gert við leka í lofti í íbúð 2. h. til v.
2022 - Ástandsskýrsla gerð á Reykási 22-26. Skoðunin var framkvæmd af Verksýn.
2020 - Þakrennur og þakkantur lagfærður
2017 - Gluggar og hurðir málaðar að utan
2015 - Skipt um þakjárn á norðurhlið nr.26
2010 - Svalir vatnsþéttar og dúklagðar
2010 - Skipt um þakjárn á suðurhlið alls hússins
Þetta er vel staðsett eign á rólegum stað í Árbænum með þremur svefnherbergjum og möguleika á að bæta því fjórða við. Stutt er í leikskóla, grunnskóla, Árbæjarlaug og íþróttastarf hjá Fylki. Stutt er í Elliðaárdalinn og Heiðmörk. Þetta er góð eign sem hefur fengið gott viðhald.
Nánari lýsing:
Forstofa: Parket er á forstofu og öllu alrýminu sem gengið er inn í frá forstofu.
Hjónaherbergi: Er rúmgott með parketi á gólfi og fataskápum.
Önnur herbergi: Eru mjög rúmgóð og möguleiki á að bæta við herbergi.
Baðherbergi: Hefur að geyma bæði sturtu og bað. Það er mjög rúmgott með sambyggðu þvottahúsi.
Eldhúsið: Var endurnýjað að fullu árið 2023, nýjar innréttingar og tæki.
Stofa og borðstofa: eru samliggjandi í björtu og rúmgóðu rými með aukinni lofthæð og nýlegu parketi á gólfi (2023)
Sjónvarpshol: Er á efri hæð en einnig er hægt að hafa það á gangi neðri hæðar
Bílskúr er 26,4 fermetrar og er staðsettur fyrir framan húsið.
Geymsla er rúmgóð á 1 hæð.
Eignin skiptist í eldhús, stofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi, sjónvarpshol, þvottahús inn af baðherbergi og geymslu ásamt 26, fm bílskúr og útsýnissvölum.
Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,
Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.
-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.