DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 4. okt. 2026

Fagrihjalli 100

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
186.8 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
144.900.000 kr.
Fermetraverð
775.696 kr./m2
Brunabótamat
100.800.000 kr.
Byggt 1989
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
20603361
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Aldir fasteignir kynna til sölu fallegt parhús innst í botnlanga að Fagrahjalla 100 í 200 Kópavogi. Eignin er skráð 186,8 m2 að stærð, þar af íbúðarrými 161,3 m2 og bílskúr 25,5 m2, og samanstendur af anddyri, eldhúsi, stofu, allt að fimm svefnherbergjum, þvottahúsi, snyrtingu og baðherbergi auk bílskúrs sem hægt er að nýta sem auka íbúð. Fyrir framan eign er suður verönd og frá stofu er útgengt á skjólgóðar þaksvalir.  Falleg eign á kyrrlátum stað innst í botnlanga í suðurhlíðum Kópavogs. 

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@aldirfasteignir.is

Nánari lýsing.

Anddyri: Opið og bjart með stórum fataskápum. Á gólfi eru flísar 60x60 flísar frá Birgisson. 
Eldhús: Falleg hvít innrétting [Schmidt] frá Parka, mikið skápapláss, góð vinnuaðstaða, nýlegur ofn í vinnuhæð og nýlegt helluborð. Á gólfi eru 60x60 flísar frá Birgisson og frá eldhúsi er útgengt á skjólgóða suður verönd. 
Snyrting: Sérsmíðuð innrétting, góðar hirslur, vegghengt wc, flísar á gólfi á veggjum utan þess sem geymir innréttinguna.
Þvottahús: Hvít innrétting, ágætir efri skápar. Á gólfi eru flísar. 
Herbergi: Gluggar til norðurs, rennihurð sem nær upp í loft. Á gólfi eru flísar.  
Herbergi: Parket á gólfi og gluggar á tvo vegu. 
Stofa: Rúmgóð og björt með aukinni lofthæð, innfelldri lýsingu, parketi á gólfi, sólskála og tveimur útgönguleiðum á skjólgóða þakverönd eignar. 
Hjónaherbergi: Rúmgott með tveimur stórum fataskápum, gluggum á tvo vegu og parketi á gólfi.  
Herbergi: Parket á gólfi og stór gluggi með opnanlegu fagi. 
Baðherbergi: Innrétting og tæki frá Tengi, vegghengt wc, baðkar og sér sturtuklefi. Á gólfi og á veggjum eru flísar. 
Risherbergi: Birt stærð er 15,6 m2 en er stærri að gólffleti og býður upp á margvíslega möguleika. Í herbergi er þakgluggi, á gólfi er parket og inn af herbergi er geymsla. 
Bílskúr: Heitt og kalt vatn, rafmagn og góðir gluggar. Er í dag nýttur sem vinnustofa og allar lagnir til staðar til að útbúa auka íbúð. Fyrir framan bílskúr er bílastæði eignar, sérsmíðuð sorpgeymsla og geymslur fyrir garðáhöld.

Að framanverðu er suður verönd, ofan á bílskúr eru afgirtar þaksvalir, sem gengið er út á frá stofu og bjóða upp á fallegt útsýni til fjalla og yfir dalinn, og loks er stór nýleg afgirt timburverönd á bak við hús.

Skv. seljenda var járn á þaki, rennur og niðurföll endurnýjað sumarið 2025 auk þess sem skipt hefur verið um flest gler í gluggum húseignarinnar.

Fallegt og vel skipulagt fjölskylduhús með mikla möguleika á frábærum stað í suðurhlíðum Kópavogs. 

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@aldirfasteignir.is

 


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (47)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hlíðarhjalli 30
Opið hús:06. okt. kl 17:15-17:45
Hlíðarhjalli 30
200 Kópavogur
68,1 m2
Hæð
312
960 þ.kr./m2
65.400.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarhjalli 30 - íbúð 101
Hleðslustöð
Opið hús:06. okt. kl 17:15-17:45
Hlíðarhjalli 30 - íbúð 101
200 Kópavogur
68,1 m2
Hæð
312
960 þ.kr./m2
65.400.000 kr.
Skoða eignina Hörgslundur 17
Heitur pottur
Skoða eignina Hörgslundur 17
Hörgslundur 17
210 Garðabær
179,4 m2
Raðhús
624
920 þ.kr./m2
165.000.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 12
Skoða eignina Hafnarbraut 12
Hafnarbraut 12
200 Kópavogur
105,9 m2
Fjölbýlishús
312
774 þ.kr./m2
82.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin