Gimli fasteignasala kynnir,
Fagrihjalli 10, 200 Kópavogur, sem er fallegt og vel viðhaldið parhús á tveimur hæðum ásamt sambyggðum bílskúr.
Húsið er samtals 174,8 fm og þar af er bílskúrinn 28,2 fm. Ofan á bílskúrnum eru skjólsælar, afgirtar svalir. Úr stofu á efri hæð er gengt út á suður svalir og fyrir sunnan húsið á jarðhæð er hellulögð verönd. Opið ca 11 fm risloft, sem nýtt er sem setustofa, er yfir stofunni og er ekki inn í fermetratölu hússins. Á jarðhæð er stór forstofa, hol með setkrók, baðherbergi og þrjú svefnherbergi. Á efri hæð er gestasalerni, þvottaherbergi, eldhús ásamt stórum eldhúskrók, borðstofa, stofa með sólskála og risloft. Bílskúrinn er með flísum á gólfi. Þar er einnig salerni og lítið eldhús.
Möguleiki er á að hafa íbúð í bílskúr. Einnig hægt að breyta innra skipulagi hússins og bæta við svefnherbergi.
Falleg eign með miklu útsýni á frábærum stað í Suðurhlíðum Kópavogs.
Seljendur skoða skipti á ódýrari íbúð.Bókið skoðun hjá Kristján Gíslason lgfs. í síma 691-4252, eða kristjan@gimli.isSmellið hér til þess að skoða myndband af eigninni.Eignin Fagrihjalli 10 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 206-0275, birt stærð 174.8 fm. Nánar tiltekið eign merkt 01-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
NÁNARI LÝSING:Jarðhæð:Aðalinngangur er á jarðhæð hússins og snýr í suður. Komið er inn í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi og stórum fataskápum sem ná upp í loft. Síðan er er komið inn í hol með parket á gólfi og setukrók. Úr holinu er gengið inn í öll rými á hæðinni og þar er einnig parketlagður stigi upp á efri hæðina. Á jarðhæðinni eru þrjú svefnherbergi. Eitt við hlið inngangs en tvö innst á hæðinni, öll með kork á gólfi. Fremsta svefnherbergið er með stórum fataskápum. Úti, fyrir framan fremsta svefnherbergið, er hellulögð verönd. Baðherbergið er með flísum á gólfi og á veggjum upp undir loft. Þar er bæði baðkar og sturta, einnig vaskainnrétting, speglaskápur og handklæðaofn.
Efri hæð:Stofa og borðstofa mynda fallegt og bjart rými. Sólskálinn í suðurenda stofunnar er nýlega endurnýjaður og úr honum er gengt út á suðursvalir. Úr stofu er gengt út á skjólsæla afgirta verönd sem er ofaná bílskúrnum. Úr stofu er parketlagður stigi upp á ca 11 fm risloft, með opnanlegum þakglugga, sem notað er sem setustofa í dag. Risloftið er ekki inn í fermetratölu hússins. Á efri hæðinni er gestasalerni og einnig þvottaherbergi. Innst á hæðinni er stórt eldhús með U-laga eldhúsinnéttingu og síðan er stór eldhúskrókur við hlið eldhússins. Parket er á gólfum stofu og borðstofu en dúkur á eldhús gólfi.
Bílskúrinn er 28,2 fm. Að framanverðu er bæði bílahurð með rafmagnsopnun og gönguhurð við hlið hennar. Þá er einnig hurð innst í bílskúrnum, út í bakgarðinn. Heitt- og kalt vatn auk rafmagns er í skúrnum. Gólfið var nýlega flísalagt og búið er að útbúa eldhúskrók og salerni innst í skúrnum. Fyrir framan skúrinn er upphitað hellulagt bílastæði og þar er einnig hleðslustöð fyrir rafbíla.
Fyrir aftan húsið er gróinn garður með litlum geymsluskúr.
Um er að ræða vel staðsett hús sem stendur í litlum rólegum botlanga. Mikið útsýni er til suðurs þar sem ekkert hús er fyrir framan. Frábær eign sem býður uppá mikla möguleika m.a. að möguleika á að bæta við svefnherbergi í húsinu og hafa íbúð í bílskúrnum.Húsfélag er fyrir húsin 2 - 20 (sléttar tölur) en félagið sér um garðinn sem er fyrir framan Fagrahjalla 10. Greitt er í sjóðinn ef einhverjar framkvæmdir standa til.
Almennings bílastæði er rétt fyrir neðan húsið.
Nánari upplýsingar veitir: Kristján Gíslason Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 691-4252, tölvupóstur kristjan@gimli.is eða
gimli@gimli.isGimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá
Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isGimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala