Fasteignaleitin
Skráð 17. sept. 2024
Deila eign
Deila

Kolagata 3

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
120.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
126.900.000 kr.
Fermetraverð
1.055.740 kr./m2
Fasteignamat
108.300.000 kr.
Brunabótamat
86.600.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2018
Þvottahús
Lyfta
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2363599_8
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
6
Vatnslagnir
Nýlegar
Raflagnir
Nýlegar
Frárennslislagnir
Nýlegar
Gluggar / Gler
Nýlegt
Þak
Nýlegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Nýtt á skrá - Kolagata 3 Reykjavík, Íbúð 206 - Opið hús miðvikudaginn 18. september kl. 17:30-18:00

*** Glæsileg lúxusíbúð með þakverönd í hjarta Reykjavíkur *** Íbúðin er laus við kaupsamning!

Bókið skoðun hjá:
Töru Sif Birgisdóttur lögg. fasteignasala / tara@fastlind.is / 847-8584
Heimi Hallgrímssyni lögg. fasteignasala / heimir@fastlind.is / 849-0672

Lind fasteignasala og Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir glæsilega 120,2 fermetra 3ja herbergja íbúð (206) með þakverönd og útsýni út á Reykjavíkurhöfn við Kolagötu 3 (Hafnartorgi) í nýlegu húsi byggðu af ÞG Verk í hjarta miðbæjarins. Íbúðin er frábærlega staðsett í nálægð við alla menningu og verslun og þjónustu sem Miðborgin hefur upp á að bjóða. Allar innréttingar og tæki eru sérvaldar af innanhúsarkitekt til að mynda eina stílhreina heild og eru öll tæki og tæknibúnaður fyrsta flokks. Allt ytra efnisval bygginganna er í hæsta gæðaflokki sem og allur lóðarfrágangur. 

Íbúðin er hið glæsilegasta eins og fyrr greinir með fallegum innréttingum frá Noblessa og borðplötum úr vönduðu Meganite Carrara efni. Öll eldhústæki eru af vandaðri gerð frá Siemens og vínkæli í eldhúseyju. Aukin lofthæð og allar innihurðar extra háar og framleiddar af HBH smíðaverkstæði. Myndavéladyrasími og blöndunartæki af vönduðustu gerð frá Vola (Tengi). Rafkerfi útihurðir eru raflæstar og tengdar heildstæðu aðgangsstýrikerfi. E-Net ljósastýrikerfi frá GIRA er í öllum íbúðum sem býður upp á notkun smáforrits (app) í snjalltækjum til að stýra ljósum. Hita og loftræstikerfi pípulagnakerfi hússins (innan íbúða) er leitt í gegnum lóðrétta lagnastokka. Ofnalagnir eru innsteyptar rör-í-rör og ofnar eru með vönduðum ofnlokum frá Danfoss

Eignin skiptist í: Anddyri, gang, 2 svefnherbergi, rúmgóða stofu/borðstofu, stóra þakverönd, eldhús með eyju, 2 baðherbergi og þvottaherbergi. Geymsla á jarðhæð.

Fasteignamat næsta árs (2025) er kr. 118.950.000,-


Forstofa: Með harðparketi á gólfi og skápum. Fataskápar eru sprautulakkaðir með innvols frá Innval af vandaðri gerð. Inngangshurð er svargrá með viðaráferð frá Huet.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og glæsilegri innréttingu frá Noblessa með eyju. Borðplata er úr Meganite Carrara efni og með eldhúsvask sem felldur er í borðplötuna úr sama efni. Öll eldhústæki eru af vönduðustu gerð frá Siemens. Lýsing er undir efri skápum og ljúflokun á skúffum og skápum. Innbyggður kæliskápur, uppþvottavél og vínkælir fylgir. Auk þess innfelld kaffivél og innbyggður gufugleypir í eldhúseyju.
Stofa: Með harðparketi á gólfi og gluggum í tvær áttir. Stofa er opin við eldhús og rúmar setustofu og borðstofu. Fallegt útsýni úr stofu út á Reykjavíkurhöfn.
Þakverönd: Gengið er út á þakverönd frá stofu. Viðarverönd og fallegt útsýni að Reykjavíkurhöfn.
Baðherbergi I: Er afar glæsilegt með flísum frá Iris stone á bæði gólfi og veggjum. Falleg innrétting frá Noblessa. Meganite borðplata með innbyggðum vaski úr sama efni. Upphengt salerni með innbyggðum vatnskassa og falleg flísalögð sturta með innbyggðum blöndunartækjum frá Vola.
Hjónaherbergi: Er stórt með harðparketi á gólfi og miklu skápaplássi. Stór gluggi út að sérafnotafleti/verönd og baðherbergi II inn af hjónaherbergi.
Baðherbergi II: Virkilega glæsilegt með flísum frá Iris stone á bæði gólfi og veggjum. Falleg innrétting frá Noblessa. Meganite borðplata með innbyggðum vaski úr sama efni. Upphengt salerni með innbyggðum vatnskassa og falleg flísalögð sturta með innbyggðum blöndunartækjum frá Vola.
Svefnherbergi: Með harðparketi á gólfi og glugga sem snýr út að sérafnotafleti/verönd.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi, innréttingu og vaski. Stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Er staðsett á geymslugangi og er 7,7 fermetrar að stærð.

Einstakt hús í hjarta borgarinnar.
Hafnartorg skartar 70 hágæða íbúðum, allt frá stílhreinum tveggja herbergja íbúðum upp í stórglæsilegar þakíbúðir með einstöku útsýni. Allar innréttingar og tæki eru sérvaldar af innanhúsarkitekt til að mynda eina stílhreina heild og eru öll tæki og tæknibúnaður fyrsta flokks. Allt ytra efnisval bygginganna er í hæsta gæðaflokki sem og allur lóðarfrágangur. Undir húsunum er stærsti bílakjallari landsins sem nær allt til Hörpunnar. Íbúðirnar eru frábærlega staðsettar í nálægð við menningu, sögu, verslun og þjónustu. Lúxus fasteignir í hjarta Reykjavíkur með iðandi mannlíf allt um kring.

Bílakjallari.
Í bílakjallaranum, sem er opinn allan sólarhringinn alla daga ársins. Mikið verður lagt upp úr frágangi hvað varðar lýsingu, merkingar og að auki verður fullkomið leiðsagnarkerfi til að auðvelda að finna stæði eða fá leiðbeiningar um hvar bílar eru staðsettir og hvernig eigi að komast að og frá þeim stað sem eigandi bíls er staddur í byggingunum. Íbúum hússins gefst kostur á að gera langtímasamning um leigu á bílastæði.

Byggingaraðili.
Frá árinu 1998 hefur ÞG Verk byggt fjölda heimila fyrir ánægðar fjölskyldur. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð fyrirtækisins.  Meginmarkmið ÞG Íbúða ehf  er að skila góðu verki og eiga traust og áreiðanleg samskipti við viðskiptavini.

Hönnuðir.
Arkitektar hússins eru PKdM arkitektar. Stofan sem var stofnuð af Pálmari Kristmundssyni arkitekt hefur unnið til fjölda verðlauna hér heima og erlendis fyrir framúrskarandi hönnun.
Guðbjörg Magnúsdóttir, sem er meðal þekktustu innanhússhönnuða landsins, hannaði og sá um efnisval inn í allar íbúðir á 2-5 hæð húsanna.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sólvallagata 79
Skoða eignina Sólvallagata 79
Sólvallagata 79
101 Reykjavík
108.4 m2
Fjölbýlishús
312
1171 þ.kr./m2
126.900.000 kr.
Skoða eignina Sólvallagata 79
Skoða eignina Sólvallagata 79
Sólvallagata 79
101 Reykjavík
107.4 m2
Fjölbýlishús
312
1172 þ.kr./m2
125.900.000 kr.
Skoða eignina Sólvallagata 79
Skoða eignina Sólvallagata 79
Sólvallagata 79
101 Reykjavík
96.3 m2
Fjölbýlishús
312
1224 þ.kr./m2
117.900.000 kr.
Skoða eignina Sólvallagata 79
Skoða eignina Sólvallagata 79
Sólvallagata 79
101 Reykjavík
107.1 m2
Fjölbýlishús
312
1194 þ.kr./m2
127.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin