Fasteignaleitin
Skráð 7. mars 2025
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
374 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
93.600.000 kr.
Fermetraverð
250.267 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
204260924
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
Stórar verandir
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGAR GOLFVILLUR Á LA FINCA GOLFVELLINUM*

Sérlega vönduð og falleg, vel skipulögð og rúmgóð og ný einbýlishús á einni hæð í stuttu göngufæri frá klúbbhúsinu við hinn glæsilega La Finca golfvöll. Góð sér lóð með einkasundlaug og aðgengi að sameiginlegum sundlaugargarði. Um 30 mín akstur suður frá Alicante. Sérlega glæsileg hús með góðu alrými, þremur svefnherbergjum, fataherbergi og tveimur baðherbergjum. Mikil lofthæð í alrými gefur glæsilegt yfirbragð. Stór hálfinnréttaður kjallari fylgir. Stór sér lóð með einkasundlaug. Bílastæði inni á lokaðri lóð og auk þess möguleiki á að hafa bílskúr i kjallara.

Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 00354 893 2495. adalheidur@spanareignir.is, 
 Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869 og Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 00354 777 4277. Karl@spanareignir.is

Nánari lýsing:

Falleg aðkoma er að húsinu og skiptist það í gott eldhús, með góðri tengingu við útisvæði og stofu/borðstofu í rúmgóðu alrými með mikilli lofthæð sem gefur glæsilegt yfirbragð. Rafmagnstæki fylgja í eldhúsi.
Hjónasvíta með sér baðherbergi og fataherbergi. Auk þess tvö svefnherbergi til viðbótar á sérgangi og þar er annað baðherbergi. Gólfhiti á baðherbergjum.

Út frá stofunni er stór verönd og góður, lokaður garður með flottri aðstöðu til að njóta sólar, grilla ofl. Einkasundlaug í garðinum.
Stór hálfinnréttaður kjallari fylgir. Þar ræður kaupandi lokafrágangi og getur látið innrétta þar eftir sínum óskum gegn aukagjaldi. Td. bílskur, tómstundarými, vinnuaðstöðu, gestasvítu eða annað.
Fallegt og gróið umhverfi með La Finca golfvöllinni rétt við þröskuldinn.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.

Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða, í örstuttu göngufær við nýja og flotta klúbbhúsið á La Finca golfvellinum 5* golf og spa hótel og nýjan og glæsilegan þjónustukjarna með gæðaveitingastöðum, vínsmökkun og verslunum. 
Einnig eru fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Campoamor, Las Colinas, Villamartin, Las Ramblas, Lo Romero, Vistabella, Roda Golf,  La Marquesa og fleiri.

Ca. 20 mín akstur er niður á ströndina og ca. 20 mín akstur í vinsælu verslunarmiðstöðina, La Zenia Boulevard. Ennfremur er stutt að keyra í skemmtilega bæi í næsta nágrenni, t.d. Algorfa og Ciudad Quesada.

Lúxuseign fyrir kröfuharða golfara og fólk sem kann að njóta lífsins.

Verð frá 648.000 Evrur. (93.600.000ISK miðað við gengi 1E=145ISK)
Húsið er 137 fm.
Kjallarinn 182 fm
Verönd 55fm.
Samtals 374 fm.

Húsin eru tilbúin til afhendingar í maí 2025.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is
Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.13%.

Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug, kjallari, bílastæði, golf
Svæði: Costa Blanca, La Finca,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
204260924

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
Spánn - Costa Blanca
343 m2
Einbýlishús
423
262 þ.kr./m2
89.700.000 kr.
Skoða eignina Skúlagata 13
Skoða eignina Skúlagata 13
Skúlagata 13
310 Borgarnes
318.3 m2
Einbýlishús
524
280 þ.kr./m2
89.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin