Fasteignaleitin
Opið hús:20. des. kl 12:00-12:30
Skráð 17. des. 2025
Deila eign
Deila

Rauðalækur 18

Tví/Þrí/FjórbýliHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
111.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
98.900.000 kr.
Fermetraverð
888.589 kr./m2
Fasteignamat
78.000.000 kr.
Brunabótamat
51.860.000 kr.
Mynd af Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1957
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Fasteignanúmer
2016640
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Endurnýjaðar að hluta
Raflagnir
Endurnýjað að hluta / rafmagnstafla endurnýjuð 2022
Frárennslislagnir
Endurnýjaðar að hluta / frárennslislagnir við bílskúr nýlega endurnýjaðar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðursvalir
Upphitun
Hitaveita
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Fataskápar hafa verið fjarlægðir úr tveimur herbergjum, gólfefni vantar þar sem þeir voru. Gluggar eru upprunalegir og er móða á milli glerja í nokkrum gluggum. Skipta þarf út hurð inn á baðherbergi í bílskúr. Seljandi mun sjá um að skipta um hana fyrir afhendingu.
Domusnova og Ingunn Björg kynna bjarta og vel skipulagða 4ra herbergja hæð auk bílskúrs í fjórbýlishúsi við Rauðalæk 18. Falleg eign á eftirsóttum og fjölskylduvænum stað í Laugarneshvefinu þar sem stutt er í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.

Um er að ræða rúmgóða íbúð á 2. hæð auk frístandandi bílskúrs sem innréttaður hefur verið sem íbúð ( núverandi leigutekjur eru 150.000  kr á mánuði  en hækka í 200.000 1.jan ).
Skv. HMS eru heildarfermetrar skráðir 111,3 fm2 þar af er bílskúr 24,5 fm2.


Íbúðin samanstendur af holi, 3 svefnherbergjum, stofu / borðstofu, eldhúsi, baðherbergi, geymslu í sameign hússins og bílskúr sem útbúinn hefur verið sem íbúð.

Frábær staðsetning á horni Rauðalæks og Bugðulæks þar sem stutt er í skóla, leikskóla, sundlaugina og verslunarkjarnann þar sem m.a. má finna Kaffi Laugalæk, Matland, Brauð og co, Krambúðina, Pylsumeistarann og Ísbúð Laugalæks.

Nánari upplýsingar veitir:

Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is

Nánari lýsing eignar:
Hol:
Með fataskáp.
Eldhús: Rúmgott og bjart eldhús með tveimur gluggum. Falleg hvít innrétting með eikarborðplötum, flísar á milli efri og neðri skápa og upp vegg að mestu við helluborð. Ofn í vinnuhæð, helluborð, háfur, borðkrókur. Parket á gólfi. 
Stofa / borðstofa: Fallegt og bjart rými með gluggum á tvo vegu. Parket á gólfi.
Herbergi 1: Rúmgott, parket á gólfi. Útgengt á suður svalir. Þetta rými er í dag nýtt sem herbergi en var áður borðstofa. Auðvelt að breyta til baka í fyrra horf.
Herbergi 2: Rúmgott og bjart með stórum glugga, parket á gólfi. 
Herbergi 3: Rúmgott og bjart með tveimur gluggum, parket á gólfi. 
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Innrétting undir vaski, baðkar með sturtuaðstöðu, handklæðaofn, salerni.
Geymsla: Í sameign.
Þvottahús: Í sameign þar sem hver er með sína vél.
Bílskúr / Íbúð: Rýmið hefur verið útbúið sem studio íbúð sem skiptist í bjart alrými með fjórum gluggum. Alrými með svefnaðstöðu , góð eldhúsinnrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Baðherbergi með upphengdu salerni, sturtu og vask. Tengi fyrir þvottavél. Gönguhurð er inn í íbúiðina frá garði. 

Húsið: Eftirfarandi upplýsingar voru til staðar í söluyflirliti frá fyrri eigendum. Húsið allt múrviðgert og málað árið 2006. Árið 2010 voru frárennslislagnir undir plötu í kjallara endurnýjaðar ásamt heita og kaldavatnslögnum frá húsi að bílskúrum. Rafmagnstafla í sameign var endurnýjuð 2022 ásamt því að rafmagn í sameign var yfirfarið. Framkvæmdar voru sprungufyllingar utanhúss og dælt í glugga þar sem þörf var árið 2024. 


Nánari upplýsingar veita:
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
25/07/202365.550.000 kr.74.000.000 kr.111.3 m2664.869 kr.
02/07/201943.950.000 kr.49.000.000 kr.111.3 m2440.251 kr.
30/06/201022.450.000 kr.24.600.000 kr.111.3 m2221.024 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 1970
24.5 m2
Fasteignanúmer
2016640
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
8.560.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Háteigsvegur 2
Skoða eignina Háteigsvegur 2
Háteigsvegur 2
105 Reykjavík
122.7 m2
Fjölbýlishús
413
814 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Borgartún 24
Bílastæði
Skoða eignina Borgartún 24
Borgartún 24
105 Reykjavík
87.2 m2
Fjölbýlishús
312
1135 þ.kr./m2
99.000.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 204
Laugaborg íbúð 204
105 Reykjavík
98.1 m2
Fjölbýlishús
312
1008 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 101
Laugaborg íbúð 101
105 Reykjavík
103.7 m2
Fjölbýlishús
312
926 þ.kr./m2
96.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin