Glæsilegt 228,1 fm einbýlishús við Holtagerði 3 í vesturbæ Kópavogs.
Aðalhæðin er 157,8 fm og neðri hæðin sem er séríbúð í dag er 70,3 fm.
Til viðbótar á neðri hæð eru óskráðir um 14 fm. Húsið er því samtals um 242 fm.
Tvær hæðir , tvö fastanúmer.
Velbyggt hús í góðu ástandi, hannað af Kjartani Sveinssyni. Hugsað hefur verið vel um eignina og endurnýjað að stórum hluta. Lóðin er í rækt með stórum sólpalli og heitum potti og stórum geymsluskúr.***Tvö fastanúmer, tvær eignir***
***Bílskúrsréttur***
***6 svefnherbergi***
***Stór skjólríkur sólpallur***
***Frábær og hentug staðsetning***
***Fallegt útsýni***
Nánari upplýsingar veitir:Hörður Sverrisson Lgf. í síma nr 899-5209 eða hordur@palssonfasteignasala.is
Lýsing eignar:
Efri hæð:Stór forstofa með góðum fataskáp,
Forstofuherbergi,Þvottaherbergi frá forstofu með útgengi á baklóð.
Rúmgott alrými innaf forstofu,
möguleg sjónvarpsstofa eða til annarra nota.
Svefnherbergisgangur með þremur svefnherbergjum og
fallegt baðherbergi með hvítri innréttingu, upphengdu salerni og sturtu með glerhurðum.
Endurnýjað og endurgert eldhús með fallegri innréttingu og tækjum.
Borðstofa opin við eldhús og stór stofaÚtgengi er út í garð og á sólpall með heitum potti. Garður frá efri hæð snýr í suður og er sólríkur
Neðri hæð:Séríbúð, 2-3ja herbergja með sérinngangi, búið að endurnýja að stórum hluta.
Íbúðin er skráð 70,3 fm er í raun um 84 fm þar sem aukaherbergi er nýtt sem svefnherbergi.
Lýsing: Anddyri með fatahengi, góð stofa, opið eldhús með hvítri innréttingu, tvö svefnherbergi og baðherbergi með baðkari.
Bílskúrsréttur til staðar, góð bílastæði fyrir framan báðar íbúðir húsins. www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.