DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 4. ágúst 2026

Sigtún 23

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
212 m2
7 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
193.000.000 kr.
Fermetraverð
910.377 kr./m2
Fasteignamat
162.100.000 kr.
Brunabótamat
34.550.000 kr.
Kjartan Ísak Guðmundsson
Löggiltur fasteignasali
Eignalisti
Byggt 1949
Garður
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2019225
Landnúmer
104627
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer íbúðar
010301
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Endurnýjaðar
Svalir
1
Lóð
48.04
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging

Miklaborg kynnir: Mikið endurnýjuð efri sérhæð í fallegu húsi við Sigtún ásamt bjartri 3ja herbergja risíbúð og stórum bílskúr.

Efri sérhæð:
Mikið endurnýjuð 153,5 m² efri sérhæð í fallegu húsi við Sigtún. Íbúðin snýr vel við sólu og nýtur góðrar birtu frá stórum gluggum úr öllum áttum. Við endurnýjun íbúðar var leitast við að láta „gamla“ stílinn halda sér. Fallegir franskir gluggar, hvítlakkað tréverk, vönduð gerefti, háir gólflistar og kverklistar í loftum setja sterkan svip á eignina. Lofthæð íbúðar er 2,70 metrar. Nýslípað eikarparkett er á flestum gólfum. Hæðinni fylgja tvennar svalir, 31,2 m² bílskúr, 5,2 m² sérgeymsla í kjallara og aðgangur að stóru sameiginlegu þvottahúsi.

Risíbúð:

Falleg og vel skipulögð 58 m² þriggja herbergja risíbúð. Grunnflötur er mun meiri þar sem íbúðin er talsvert undir súð. Íbúðin nýtur góðrar birtu með hallandi loftum og fallegum gluggum sem gefa eigninni hlýlegt og notalegt yfirbragð. Risíbúðin er á sér fastanúmeri.

Allar nánari upplýsingar veitir Kjartan Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is

Nánari lýsing

Sérhæð:
Inngangur og stigagangur: Gengið er inn um sameiginlegan inngang með risíbúð og upp bjartan, teppalagðan stigagang með stórum glugga. Á stigapalli er útgengt á vestursvalir. Þaðan er gengið inn í íbúðina um fallega hurð með fösuðu gleri.

Hol: Rúmgott og bjart hol myndar miðrými íbúðarinnar og tengir saman öll herbergi. Þar er stór innbyggður fataskápur og geymsla með rafmagstöflu.

Stofur: Stofurnar eru tvær, bjartar og rúmgóðar. Hægt er að aðskilja þær með franskri, hvítlakkaðri rennihurð með gleri. Úr stofu er gengið út á suðursvalir. Stofurnar eru samliggjandi og henta vel bæði sem setustofa og borðstofa.

Eldhús: Eldhúsið er rúmgott og bjart með stórum glugga og fallegri, upprunalegri innréttingu með hvítlökkuðum hurðum. Innréttingin býður upp á mikið skápapláss og efri skápar ná undir loft. Í eldhúsi er sambyggð eldavél og bakaraofn, vifta yfir eldavél og tengi fyrir uppþvottavél ásamt góðum borðkrók. Borðplötur eru úr olíubornu eikarlímtré og eru nýslípaðar. Hitalagnir í gólfi.

Baðherbergi: Baðherbergið er rúmgott og snyrtilegt. Þar eru baðkar, flísalagður walk-in sturtuklefi með nýjum glervegg, salerni, handlaug og handklæðaofn. Opnanlegur gluggi veitir góða náttúrulega loftræstingu. Mósaíkflísar á hluta veggja. Hitalagnir í gólfi.

Svefnherbergin eru tvö:

Hjónaherbergið er bjart og rúmgott með stórum innbyggðum fataskáp.

Svefnherbergi er einnig rúmgott og bjart með gluggum í tvær áttir.


Risíbúð:
Inngangur og stigagangur: Sameiginlegur inngangur er með efri sérhæð og er stigagangurinn einstaklega snyrtilegur með stórum glugga sem hleypir ríkulegri birtu inn í rýmið.

Hol: Er með flísum og við inngöngu í íbúðina tekur á móti bjart og rúmgott alrými sem tengir saman helstu rými íbúðarinnar. Þar er góð tenging milli stofu og borðstofu og nýtist rýmið vel til daglegra nota.

Stofa / borðstofa: Stofa og borðstofa eru í opnu rúmgóðu alrými með góðri lofthæð undir mæni og fallegum tveimur kvistgluggum sem hleypa inn dagsbirtu. Rýmið er skemmtilega mótað og býður upp á fjölbreytta nýtingu, bæði fyrir setustofu og borðaðstöðu. Nýslípað viðarparkett er á gólfum.

Eldhús: Eldhúsið er snyrtilegt og bjart, með hvítri innréttingu, góðu skápaplássi og glugga sem gefur fallega birtu inn í rýmið. Eldhúsið er sér en opið frá alrými, sem skapar góða tengingu án þess að taka frá sérstöðu þess.

Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt og snyrtilegt, með baðkari, sturtuklefa með nýju gleri, handlaug, salerni og handklæðaofni. Þakgluggi er á baðherbergi sem gefur bæði birtu og möguleika á góðri loftun.

Svefnherbergin eru tvö:

Svefnherbergi l: Er bjart og rúmgott með hallandi lofti og fallegum glugga. Góðar hirslur eru meðfram vegg og nýtist rýmið vel.

Svefnherbergi ll: Gott notalegt herbergi með hallandi lofti og fallegum suðurglugga. Nýslípað viðarparkett er á gólfi.

Geymsla: Stór og góð sérgeymsla er innan íbúðar með nýjum þakglugga. Þar er tenging fyrir þvottavél en í kjallara hússins er einnig sameiginlegt gott þvottahús, þurrkherbergi og hjólageymsla.

Einnig er gott geymslurými fyrir ofan íbúð með nýjum þakglugga.

Bílskúr og geymsla: Bílskúrinn er fjær húsinu og er hann 31,2 m² með sérbílastæði fyrir framan. Þar er hiti auk rennandi vatns. Bílskúrshurð er með sjálfvirkum opnara.

Í kjallara hússins er 5,2 m² sérgeymsla íbúðarinnar og sameiginlegt gott þvottahús, þurrkherbergi og hjólageymsla.

Lóð og innkeyrsla:

Við húsið er einstaklega stór og gróinn sameiginlegur garður með sameiginlegri timburverönd á baklóð hússins.

Innkeyrslan er rúmgóð og er hún bæði steinlögð og upphituð.

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
14/10/201015.800.000 kr.17.000.000 kr.58 m2293.103 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (38)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sigtún 23
Skoða eignina Sigtún 23
Sigtún 23
105 Reykjavík
212 m2
Fjölbýlishús
724
910 þ.kr./m2
193.000.000 kr.
Skoða eignina Sigtún 23
sigtun_serh_bilsk.jpg
Skoða eignina Sigtún 23
Sigtún 23
105 Reykjavík
153.5 m2
Fjölbýlishús
412
846 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Kambsvegur 23
Skoða eignina Kambsvegur 23
Kambsvegur 23
104 Reykjavík
93.9 m2
Fjölbýlishús
312
808 þ.kr./m2
75.900.000 kr.
Skoða eignina Huldubraut 17
Skoða eignina Huldubraut 17
Huldubraut 17
200 Kópavogur
210.1 m2
Parhús
615
752 þ.kr./m2
157.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin