Domusnova fasteignasala og Sverrir Sigurjónsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna:Í einkasölu :
Skemmtilegt sumarhús, byggt úr timbri og á steyptri plötu.
Það er ein halla og er húsið klætt að utan með ál og viðarklæðningu.
Við hlið hússins, innangengt af verönd er inntakshús, sem getur hvort heldur sem er nýst sem geymsla eða gestahús.
Heitur pottur er á verönd.
Að innan telur eignin:
Forstofu og inn af henni þvottahús
3 svefnherbergi, öll með fataskápum.
Baðherbergi með sturtu, innréttingu með handlaug og upphengdu wc. Af baðherberginu er útgengt á veröndina og í heita pottinn.
Gestasnyrting er með upphengdu wc og innréttingu með handlaug.
Eldhús og stofa eru saman í björtu opnu rými, þar sem er upptekin loft.
Uppþvottavél og ísskápur eru innbyggð í eldhúsinnréttingu.
Harðparket er á öllum gólfum og er gólfhiti í öllu húsinu.
Nánari upplýsingar veitir:Sverrir Sigurjónsson löggiltur fasteignasali / s.662 4422 / sverrir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.