LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir glæsilegt 307,3 m2 einbýlishús á tveimur hæðum að hluta við Fornuströnd 12 á Seltjarnarnesi. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð síðustu 20 árin. Eignin skiptist í anddyri, hol, tvö baðherbergi, 4 rúmgóð svefnherbergi, þvottahús, innangengan bílskúr, stofur, sólstofu, tvö fataherbergi, eldhús og fallegan garð með heitum potti. Bílaplan með rafmagnshleðslustöð. Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn 279,2 m2 ásamt 28,2 m2 bílskúr.
Nánari lýsing efri hæð
Komið inn í rúmgóða forstofu með fataskápum. flísalagt gólf, fataherbergi ( allar lagnir þar fyrir baðherbergi ) eldhús með útgengi út í garð, stofa með fallegum arni, sólstofa, baðherbergi, hjónaherbergi með fataherbergi innaf ( var áður tvö herbergi ) , eitt annað rúmgótt herbergi. (það var líka áður tvö lítil herbergi)
Á neðri hæðinni er opið herbergi sem getur nýst sem sjónvarpsherbergi, baðherbergi , þvottahús með innréttingu , tvö rúmgóð herbergi, innangengt er inn í bílskúr
Forstofan er flísalögð með fataskáp.
Fataherbergi er innaf forstofu með flísalögðu gólfi og góðum hirslum ( allar lagnir fyrir baðherbergi)
Eldhús með fallegri einstaklega rúmgóðri innréttingu með tvöföldum ísskáp ásamt tveimur innbyggðum uppþvottavélum, granít borðplötu, ofn og combi ofn. Útgengt út í garð með heitum potti
Stofa -borðstofa með fallegum arni , útgengi út um tvöfalda rennihurð út á timburpall og þaðan út á hellulagða verönd með skjólveggjum til hásuðurs.
Baðherbergi með góðri innréttingu með steini á borði og tveimur vöskum, walk-in sturta og upphengdu salerni, handklæðaofn.
Hjónaherbergið er mjög rúmgott var áður tvö herbergi með rúmgóðu fataherbergi ásamt fataskáp. Lúga fyrir óhreinatau liggur niður í þvottahús.
Svefnherbergi herbergi með fataskápum.
Neðri hæðin
Tvö rúmgóð herbergi með fataskápum
Sjónvarpshol með parketi á gólfi
Baðherbergi með innréttingu, walk-in sturta og upphengdu salerni
Þvottahúsið er mjög rúmgott með flísalögðu gólfi og innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavélum og þurrkara.
Bílskúrinn er innangengur frá neðri hæðinni með heitu og köldu vatni, nýlegri bílskúrshurð með rafdrifnum opnara, útgegnt út á baklóð
Helstu endurbætur á eign síðastliðin ár
*2007-2009 - var allt rifið út úr húsinu og endurgert. Skipulagi breytt, m.a. stigaop fært og fyrra opi lokað. Allt rafmagn endurnýjað og nýjar hita lagnir, auk þess sem skólp var endurnýjað alveg út í götu. Endurnýjuð gólfplata á neðri hæð. Hitalögn sett í gólf á báðum hæðum. Skipulagi forstofu breytt og sett ný útihurð. Opnað út í garðstofu og hún gerð tengdari húsinu. Nýtt eldhús og öll tæki. Eina sem stóð óhaggað var baðherbergi á eftir hæð sem hafði verið endurgert u.þ.b. tveimur árum áður.
* 2012-2014 – lofti lokað á garðstofu,
*2014 - 2016 –Bílaplan endurnýjað og steypt, hitalögn að hluta. Settur heitur pottur og stétt og veggir í kringum hann. Arinn endurnýjaður, settur svartur steinn í stað múrsteina áður
* 2016-2018 - aðalsvefnherbergi sameinað öðru og útbúið fataherbergi. Garður endurskipulagður og einfaldaður.
* 2017-2019 – skipt út gluggum, fyrst fyrir ofan bílskúr og svo í kjölfarið í aðal svefnherbergi.
* 2020 – útskipti á gluggum í stofu, breyting gerð úr gluggum í stórar rennihurðir sem opnast út á pall
* 2021 – ný bílskúrshurð með rafmagnsopnara, nýtt handrið á stiga
* 2023 – málaðurgangur og stigagangur að stofu
* 2024 – Eldri útiveggir málaðir, í kringum heitan pott og við bílastæði. Endurnýjaðar hitastýringar fyrir heita pottinn.
* 2025 – hitakerfið ræst/hreinsað út og skipt um forhitara,
Gólfhiti er í eigninni. Gólfefni eru parket á stofum og herbergjum, flísar á baðherbergi, þvottahúsi, fataherbergi og anddyri. Snjóbræðsa er í hluta af bílaplani og stétt að húsi.
Fyrir fram hús er hellulögð verönd með skjólveggjum, og á baklóð er verönd með heitum potti. Stutt í fallegar gönguleiðir í nágrenni, skólar, sundlaug, verslun og þjónusta. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is